sunnudagur, september 21, 2003

Er kominn með lykilinn að sænsku eðalstálshrúgunni hans Einars bróður og er nú orðinn fær í flestan sjó.
Bíllinn bíður við brautarpallinn og ég hoppa bara inn á þriðjudaginn og beint heim í slotið hans sem ég hef einn til ráðstöfunnar í nokkra daga meðan hann viðrar gengið sitt á Íbísa. Svo verð ég bara að vera handfljótur að skíta og sturta mig því engin hennar Theresu fögru af Bæjaralandi bíða með bjór og hoggnar hænur ómælt í bjórþurrann belg minn..

Engin ummæli: