þriðjudagur, september 30, 2003

Jæja krakkar ég er kominn heim í Heiðardalinn með buxurnar niðrumm mig... Ég vaknaði eldsnemma í morgun til að fljúga heim frá Munichtown alveg draugfullur enn eptir að hafa verið síðasti maður af engjunum í gær.
Alveg er það merkilegt hvað hann vinur minn Óskarsson er laginn við að velja fallegar góðar og skemmtilegar stelpur í vinnu til sín.
Ég var sko með þeim Önnu, Júlíu, Kristínu og Susan á ryfellíi og einhverjir steggir voru þarna reyndar líka en það var ekkert gaman að horfa á þá en stelpurnar eru alveg til fyrirmyndar og ekki er ég hissa á að risaferðasamsteypan þeirra nái langt með svona úrvalskonum í öllum stöðum..

Engin ummæli: