fimmtudagur, október 30, 2003

Hvað gerir þú við tímann?

Ég lifi góðu lífi, sagði fiskimaðurinn. Ég sef frameftir á morgnana, fiska dálítið, leik mér við börnin mín, tek "siesta" með konunni, rölti niður í þorpið á kvöldin og fæ mér vínglas og leik á gítar með vinum mínum.
Ég get gefið þér góð ráð sagði Reykvíkingurinn. Ég er Ráðgjafi með MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Þú átt að veiða meira. Þá færð þú meiri afla og getur keypt þér stærri bát og þá veiðir þú enn meira. Síðan getur þú keypt heilan flota af bátum og þá ertu ekki lengur háður því að selja í gegnum milliliði en getur verslað beint við verksmiðjurnar,sett upp verksmiðjur og jafnvel ráðið markaðnum. Þá þarftu ekki lengur að búa hér heldur getur flutt suður.
Hvað tekur þetta langan tíma? spurði fiskimaðurinn. Svona 20-25 ár.En hvað svo? spurði fiskimaðurinn. Þá kemur stóra stundin, sjáðu til. Þú breytir fyrirtækinu í hlutafélag og ferð á verðbréfamarkað og selur og stendur uppi með marga milljarða.

Já, sagði fiskimaðurinn en hvað svo? Reykvíkingurinn varð dálítið hugsi en sagði síðan: Þá flytur þú í lítið fiskiþorp, sefur frameftir á morgnana, fiskar dálítið, leikur við börnin, tekur "siesta" með konunni, röltir á kvöldin niður í þorpið og færð þér vínglas og leikur á gítar með vinum þínum.!!!







Mig vantar vinnu með skólanum !! Þarf að vera skemmtileg vel borguð vinna með sætum ritara og miklum fríðindum að ógleymdum djöfuldómslaunum....
Mínir helstu kostir eru að ég hef ekki enn fengið verkefni í neinni vinnu sem ég hef fokkað upp þannig að sama hvað þið hafið að bjóða lesendur góðir !! Ég treysti mér í allt. Mínir meginkostir að undanskilinni leti og óstundvísi eru .........................bíðiði aðeins er að spökulera.......... ja ok við ræðum þetta bara seinna.

Færeyingar eru Færeyingar og er Eivör Pálsdóttir voða sæt en hinir voða vitlausir !!! Það þýðir ekki að verða sjálfstæð þjóð að öllu leyti nema því að Danir borga svo bara allt saman..

Bílddælingar og Tálknfirðingar eru komnir í hár saman útaf því hvar presturinn á að vera... Ég segi Tálknafjörð ! Vegna þess að á Bíldudal er nýtt íþróttahús og hafa þeir andskotar ekkert að gera með prest líka....... eða sossum enginn ef útí það er farið.

Ég er annars búinn að upplifa mikla fegurð undanfarna daga og er það alltaf gaman..

mánudagur, október 27, 2003

Eru allir sykurpúðarnir í Lucky Charms eins á bragðið sama hvaða litur er á þeim ? Gaman væri að sérfræðingar í Lucky Charmsy segðu mér þetta.....
Þessi helgi var yndisleg í alla staði !!!! Matur og drykkur eins og best verður á kosið og félagsskapurinn hinn besti sem um getur..... sá Kill Bill á föstudaginn og skemmti mér stórvel hún er svo ljóðræn og falleg...

föstudagur, október 24, 2003

Ég er í góðu skapi í dag. Hrannar er búinn að koma á fund og svo fer ég á mikilvægan fund í kvöld með íðilfagurri mey... Ég er búinn að drekka 1 lítra af kaffi...og er að fara að laga annann.
Mikið eru danir annars heppnir að eiga svona glæsta fulltrúa hér á landi.....og ég heppinn að það skuli vera svona glæsileg dönsk kona hér....

Der bor en bager i Nörregade
Han bager kringler og julekager
Han bager store han bager små
Han bager nogle med sukker på.....

fimmtudagur, október 23, 2003

Ég fór í Vesturbæinn í dag ! Það var gaman og náði að losna við hlut sem er lengi búinn að vera hjá mér og tók réttur eigandi við með bravúr...
Bróðir minn yndislegur var rétt í þessu að segja mér að snjókoma væri í Efrisleiksheimi í nágrenni Munkaþverár iss hvað ég hefði orðið seinn í vinnuna á morgun S-Bahn menn eru aldrei tilbúnir í fyrstu snjóum. Ég er reyndar aldrei tilbúinn á morgnana en það er nú önnur saga....
Ég var að frétta að hún Finney Rakel byggi í grennd við München !!! Það er ljótt að segja mér svona seint frá svona hlutum vegna þess að ég hefði viljað sýna henni leðurblökurnar í Enska garðinum í myrkri ég er hrikalega góður íðí......... Já ekkert fara að glotta neitt ég er nú að verða menntaður leiðsögumoðerfokker...ehemm..

Annars var fuglafræði í skólanum í kvöld þar var reyndar ekkert talað um furðufugla en mig vantar einmitt mest að vita meira um svoleiðis......fugla.
Sumar konur eru svo frekar að þær súrna uppúr og niðrúr...
------------------ Ég er orðinn official kvikmyndastjarna það er rosalegt !!!-----------



Hlutverkið sem ég lék í þessari mynd var mjög krefjandi og ég lék öll mín áhættuatriði sjálfur. Af einhverjum listrænum ástæðum voru nektar-ástarsenurnar með mér og Veronu Feldbusch klipptar út vegna listræns ágreinings. En hin atriðin löngu og ströngu með tilþrifunum eru þarna enn...

þriðjudagur, október 21, 2003

Minn alllra besti vinur til mörghundruð ára lenti í því um daginn að ég eitraði fyrir honum það illa að hann fór að dreyma um SÍF og SH. Þetta þykir mér einkennilegt vegna þess að hann er alinn upp á svokölluðu Sogavegskaffi frá 4ra mánaða aldri. Sogavegskaffi er svo sterkt að það er borið fram í emeleruðum títanbollum vegna þess að venjuleg glös og bollar hverfa ef því er hellt þar í.....Ég hef reyndar margoft lent í því að drekka þetta kaffi sem ég byrlaði honum í skógarlundum Bæjaralands í matartímum og sölnuðu yfirleitt laufin á trjánum og fuglar drápust í kílómeters radíus. Þannig að þetta er ekkert skrýtið kæri vin...

mánudagur, október 20, 2003

Jæja ! Hefði betur haldið kj... þarna í morgunn.

Mér líður núna eins og manni sem er búinn að paufast við að klífa Everest og er kominn á toppinn og á bara eftir að hamra fánann sinn niður þegar honum skrikar fótur og hann rennur á rassinum alla leið niður á byrjunarreit....Sumsé maximum árangur sem verður ekki að neinu eins og hendi væri veifað..
Kominn mánudagur eftir helgi sem var 100% success og hefur mér ekki liðið svona vel lengi.....Hef nú hafið dönskunám eitt mikið og stefni að því að taka próf í 3. málum í vor.
Ég er að velta fyrir mér hvort ég eigi bara ekki að drekka vanillukókið sem ég flutti inn frá Þýskalandi í tilefni dagsins, ropa vel á eftir og brosa breitt með sjálfum mér....

laugardagur, október 18, 2003

Jæja stelpur ég er að fara að smala held ég bara í fyrramálið þannig að þær ykkar sem voru bókaðar seint í kvöld....please be gentle......Er annars alvörumál fyrir sanna karlmenn (og einstaka konur) að fara í eftirleitir þegar veður eru válynd og maður kannski smá timbraður..
Ég hjálpaði til við gólfbónun í nótt það var gaman..
Eru austfirðingar búnir að gera sér fulla grein fyrir því að það eru komnir 3000 eða eitthvað svoleiðis karlmenn í nágrennið ? Hvað eru til margar kellingar á sexúal nothæfum aldri þarna ? Ég giska á svona 2000 þar af eru örugglega 200 ekki til í tuskið 200 svo óheppnar með útlitið að enginn vill þær og 1500 giftar eða í sambúð þetta skilur eftir 100 austfirskar megabeibur sem eru til í flest..En það eru 3000 italianos eða portoguesos svo að alltof margir grey kallar sem eru búnir að norpa úti í skítakulda skó og gallalausir og hafa enga von um kvenlega hlýju...

Það er allt í lagi krakkar mínir vegna þess að suðurevrópubúar eru ekki eins kreisnir á rekkjunauta og við hin.
Suðurevrópubúum er nefnilega alveg sama hvort þeir liggja með aðila af sama kyni eða þessvegna af annari tegund
og eru ítalir og einmitt portúgalir þekktir fyrir áhuga sinn á geitum og já einmitt sauðkindum !!!! Hugsið ykkur þetta tækifæri bænda til sóknar uppi við Kárahnjúka núna þegar allt er að fara fjandans til í landbúnaðinum og allir væla hver í kapp við annan... Landsvirkjun hefur unnið þrekvirki í byggða og atvinnumálum landsins án þess að vita af því hvað þá meir....Þetta eru svo miklir öðlingar...

föstudagur, október 17, 2003

Hvað finnst ykkur lesendur góðir, á ég að senda henni Xiujun Wang hattasölukonunni erótísku frá Kína fleiri meil ?



Ég hitti alveg ágætt fólk seint í gærkvöld eftir skóla...
Ég lærði dulítið skemmtilegt í skólanum í gær og það væri óskandi að ég hefði vitað þetta fyrr..

Nei stelpur !!! þessar þúsundir áskorunarbréfa um nektarmyndir af mér hérna á síðunni eru tilgangslaus. Ég er meira en bara líkami.........

fimmtudagur, október 16, 2003

Ég var að éta yummíbörger á Ruby Tuesday mmmmm gott..
Hvað er sniðugt við þessar setningar ????

Vá! Má merk skatan nota tonnatakskrem á máv?
og
Anna, bara sú hása, sá hús arabanna
Prufa að setja link að menningarstórvirki aldarinnar enn sem komið er.....
Ég skil ekki hvernig spænskir eða eitthvað þaðanafverri vitleysingar fundu þessa síðu og eru farnir að tilbiðja mig sem Satan..... Strákar mínir stoppa bara hérna sko !!!! Þetta er orðið gott núna farið þið bara að hugsa um geiturnar ykkar...
Ég á eina sætustu systur sem um getur, hún er algjört megabeib og er búin að vera alla ævi..


Bílddælingar eru fínt fólk á vondum stað. Vala Flosa er Bílddælingur. Það er ekki Bílddælingum að kenna að hún getur ekkert í stangarstökki meir. Ég hef heyrt að núna sé hún meira í stangarsökki....

Ég er hættur að skrifa um Bíldudal.....Er að hugsa um að fara að skrifa illa um útgerðarmenn á Akranesi sem seldu hjartað úr bænum sínum til Eimskips sem svo aftur seldi sjálft sig og vill nú selja sig aftur bara í smærri einingum... Sturlaugssynir halda að þeir gangi fyrir með að fá að kaupa sig aftur !!!! Eru þeir það vitlausir að halda að lygarnar sem þeir lugu að Sandgerðingum og var svo logið að þeim fyrir ári síðan séu orðnar eitthvað sannari en síðast....Það er alltaf það sama í þessu útgerðarkvótabraskskjaftæði.... Money and ONLY money talks...bullshit walks.....I'm a walking man...

miðvikudagur, október 15, 2003

Sko ! nú er Terminator búinn að vera ríkisstjóri í viku eða svo og áhrifin á Ísland komin í ljós þe. ekkert, enda skiptir þetta okkur jafn miklu og Bíldudalur Bandaríkin.
Bíldudalur vel á minnst !!! Einhver ljóti strákurinn sagði mér að réttast væri að reka alla bílddælingana inn í nýja íþróttahúsið þeirra loka öllum dyrum og hlassa svo einu snjóflóði þarna niður og losna þar með við vanda þessa byggðarlags á fljótlegan og varanlegan hátt.
Ég leit bara á manninn og sagði "Voðalega ertu vondur kall".........
Ég var að komast að því að áhrifamesta stórmynd kvikmyndasögunnar verði frumsýnd í þýska sjónvarpinu á tveimur stöðvum samtímis þe. ARD og BR og ekki veitir af þegar annar eins menningarviðburður stendur fyrir dyrum.
Allt gerist þetta þann 22.okt kl. 20.15 og heitir myndin "Leben wäre schön" og leikstjórinn Kai Wessel þess má geta að ég er þarna í stóru hlutverki sem tekur reyndar mjög stutta stund í flutningi en er þeim mun áhrifaríkara....Já stelpur ég verð víst að viðurkenna að ég er kvikmyndastjarna líka..
Jæja krakkar nú er kominn tími á smá söngl..

Questions more questions
Run round in my head
No answers solutions
Illusions instead
As I walk alone
And I picture the past
The very beginning I ask yes I ask


The face may be gone
But the scent lingers on
Don't deny
No place can I go
My hopelessness shows in my eyes


Questions more questions
Never ending they seem
My passion my heart
Ripped out at the seams
Like a jigsaw in pieces
I have all the parts
To put them together
More a feat than a task

Where can I go

I remember so well
Like a child sees the past
You rejected my passion
Ripped out my heart
Questions, questions
Tormenting myself
Disillusioned and broken
Like a toy on a shelf
Like a child in the corner
With my head in my hands
Rejected I wonder
Through life's empty lands

þriðjudagur, október 14, 2003

Það er risið Íþróttahús á Bíldudal !!! Þvílík lyftistöng fyrir bæjarfélagið að það skuli vera risið 100 milljóna íþróttahús !!! Á Bíldudal þrífst ekki matvöruverslun. Helmingur allra húsa á Bíldudal eru í stórhættu vegna ofanflóða og verður ríkið að kaupa þau ef ekki verður byggður varnargarður fyrir ótalda milljarða króna. Það er enginn kvóti á Bíldudal. Kvótinn fékk ekki vængi og flaug í burtu sjálfur, nei hann var seldur af skammsýnum mönnum sem væla nú yfir því að börnin þeirra eigi enga lífsvon og bla bla bla. Hvenær er nóg komið af kjaftæði og hvað þarf staður að vera óbyggilegur og ömurlegur til að fólk fari bara í burtu og leyfi þessum andskota að fenna í kaf í friði ? Einfaldast væri að kaupa húsin af fólkinu á markaðsvirði og leyfa því að setjast að annarsstaðar td. í Hafnarfirði...

mánudagur, október 13, 2003

Í kvöld er rætt um Hvali og Sjávarspendýr...Ef ég ligg á baðströnd þá er ég eins og sjávarspendýr en með lim sem er líkari þeim sem eru á hestum...Ætti ég að deila þessari speki með þeim í skólanum ???
Ég hef ákveðið að byrja með beitta pólitíska ádeilu og er hún svona : Davíð og Halldór sökka !!! nenni ekki að útfæra þetta nánar núna en þetta er ágætis byrjun..

sunnudagur, október 12, 2003

Ég er líka að fara á Gullfoss og Geysi !!! Liggaliggalá með fimmhundruð fulla Svía !!! liggaliggalá á sunnudagsmorgni !!!!!....ojbarastasta.
Þetta hefðu mátt vera þjóðverjar ég hefði getað ýtt einum og einum út í Gullfoss án þess að það fattaðist mikið.
Er annars voða góður maður þessa dagana og ekkert að vera óþekkur. Gleymdi að hnykkja á tilboðinu í bílinn mikla og er nú farinn að spöglera í öðrum sem er reyndar á svipuðu verði þe. 3,1 milljón íslenskar en öllu stærri og rosalegri en hinn.. Getur einhver góðhjartaður einstaklingur reddað mér 35-36 tommu jeppadekkjum gefins eða ódýrar ? Þurfa að vera kúl..

laugardagur, október 11, 2003

fimmtudagur, október 09, 2003

Kom frá Klaustri á miðnætti í gær og keyrði þá beint uppí Borgarnes til hans Hrannars og við vöknuðum svo alltofsnemma og fórum á gæs. Þetta var bara fínt hjá okkur og náðum við 31 gæs sem er bara ansi vel af sér vikið miðað við að það var tjöruvitlaust veður og skotin voru eitthvað óhittin, förum á morgun uppí Hlað að kvarta yfiressu. Þetta alltsaman varð svo til þess að ég steinrotaðist í dag um eftirmiðdaginn og fokkaði skólanum alveg.... ekki gott til eftirbreytni.
Ég las það hér á netinu að vandamálaúrlausnir eru ekki auðveldar viðfangs í genum síma og að lítil mál magnist upp við slíkar aðstæður... óskandi væri að sumir hefðu tileinkað sér þennan hugsunarhátt fyrr og fengið þannig skýrari mynd í kollinn. Sannast hið fornkveðna : Enginn veit fyrr en reynt hefur.........

Annars er það að frétta úr vinnunni að ég er búinn að kynnast fullt af góðum lögfræðingum og dómurum svo vel að ég er orðinn ódæmanlegur ef ég brýt eitthvað af mér, það yrðu allir vanhæfir hver um annan þverann. Skoðuðum afrétti Fljótshverfis og Síðumanna og voru allir sáttir eða þannig.. Ég er að verða einn helsti sérfræðingur Íslands í vondum vegum og troðningum sem enginn veit um nema fuglinn fljúgandi og einstaka mýs...og bændur..

Er núna að vinna þýskuverkefni með elskulegum litla bróður sem er svo góður að keyra stóra bróður sé hann fullur óvart sko...það er offsa gaman. En er bara ekkert fullur núna svo þetta er alles umsonst.
Mikið er annars yndislegt að Arnold Schwarzenegger skuli vera orðinn ríkisstjóri í Kaliforníu. Hefur einhver Íslendingur einhverntíma eitthvað haft að gera með alla hina sem hafa verið ríkisstjórar Kalifoníu á undan honum ?? Held ekki....... og að þessvegna skipti þetta okkur ekki rassgat máli hér á Íslandi og reyndar hvergi þannig séð, Kalifornía er sko ekki sjálfstætt ríki með eigin utanríkisstefnu. Ég vona að næsti governor verði Michael Jackson það myndi bíta hattinn af skömminni.....

mánudagur, október 06, 2003

Fyndin tilviljun fyrir okkur sem stundum nám á Ártúnshöfðanum að Ferðamálaskólinn sé nýfluttur úr þeim hluta Tækniskólans sem kallast nýja álman, þetta hefði getað verið rosalega pínlegt fyrir þá sem fara huldu höfði hér um Höfðann og halda að þeir sjáist ekki...en eru nú ekki nema 200 metrar milli þessara skóla samt..
Fyrst af öllu er mér mál að syngja soldið sem mér datt í hug..

You say the world's an eventful place
You give me news
I don't want to know
You say that I should care
That I should speak my mind

Oh, but how can I speak of the world
Rushing by
With a lump in my throat
And tears in my eyes
Oh, have we come to the point of no turning back
Or is it still time to get into
The swing of things

Let us walk through this windless city
I'll go on till the winter gets me
Oh, "sleep..." you wrote "sleep, my dear"
In a letter somewhere

Oh, but how can I sleep with your voice in my head
With an ocean between us
And room in my bed
Oh, have I come to the point where I'm losing the grip
Or is it still time to get into
The swing of things

Oh, when she glows in the dark
And I'm weak by the sight
Of this breathtaking beauty
In which I can hide
Oh, there's a worldful out there
Of people I fear
But given time I'll get into
The swing of things

Yes, when she glows in the dark and
I'm struck by the sight
I know that I'll need this for the rest of my life

What have I done
What lies I have told
I've played games with the ones that rescued my soul
Oh, have I come to the point where I'm losing the grip
Or is it still time to get into
The swing of things


Er annars að fara austur á klaustur og það rímar. Ég er svo mega að Óbyggðanefnd vill mig og engann annann til að hossa þeim um fjöll og firnindi. Eru reyndar svaka góðir og skemmtilegir túrar, er td búinn að læra alveg óhemju um Friðlandið að Fjallabaki, Mælifellssand, Sprengisand, Kjöl og alla þessa afrétti þarna uppfrá líka og skal ég hundur heita ef ég fæ mér ekki jeppa sjálfur..
Ég veit meira í dag enn í gær svo ekki sé meira sagt..

sunnudagur, október 05, 2003

Ég át 3. heitar máltíðir í dag og er það 3. heitum máltiðum í dag of mikið....
Ég fór uppí Þjórsárdal í dag með danska skólakrakka. Það var voða gaman...

Á föstudaginn var bókmenntasaga í skólanum það var ofsalega gaman, sérstaklega vegna þess hve lestur Goðheima myndasagnanna hefur nú eftir skilið eftir sig in my sick and twisted brain.. Á morgun er aðalskemmtifagið mitt þe. staðhátta mombójombó og get ég þá besserwisserað extreme.....Til dæmis ef mynd af ákveðnu litlu þorpi suður með sjó þar sem aðalatvinnuvegurinn er ídýfugerð kemur upp, þá stekk ég á fætur og öskra VOGAR Á FOKKIN VASSDRUSLUSTRÖND !!! Ég hef nefnilega heyrt að sumt fólk þó yndislegt sé að öllu leiti hafi ekki gvuðmund um hvar þetta kaff er, sem er nú barasta ekkert skrýtið...

Ég gerði tilboð í jeppa samkvæmt nýju reikniformúlunni og er það framreiknað eftir þessari formúlu 3,1. milljón staðgreitt !! Þetta er hrikalegt fjallatröll með háu og lágu drifi og öllu því sem fjallabíl má prýða, vona ég að tilboðinu verði tekið strax á morgunn þá get ég sko mætt á tryllitækinu í skólann..

laugardagur, október 04, 2003

Úff var fullur í gær og fór á fullt af stöðum og hitti fullt af misskemmtilegu fólki svo er það svo rómantískt að finna hálfétinn Hlölla í jakkavasanum daginn eftir...
Lenti á sjens liggaliggalá en það kom svo uppúr dúrnum að snótin sú er gift og var henni þá skilað hið snarasta... tek ekki þátt í því að rústa lífi annarra jafnvel þótt fullur sé.
Enda er ég ekki beint að leita að neinu svona vil bara eitt ákveðið svona kúr.....
Þetta varð svo til þess að mér finnst ég svo góður að ég er að hugsa um að stofna um mig sértrúarsöfnuð þar sem ég er Messías og þeir fyrstu 50 sem ganga í söfnuðinn og borga eina milljón mega vera lærisveinar..
Hún Wang litla skrifaði mér hjartnæmt bréf til baka og sagðist aldrei hafa hitt eins yndislegan kúnna á Oktoberfest.....hmmm

föstudagur, október 03, 2003

Er að huxa um að syngja hérna annað veifið..


She gave herself
They took her to their hearts
Clapped their hands till sore
Once more eyes smart
Taxidermist gave life to Hugh
It sits and begs
And stares at you

Since when did you cook breakfast for
Lieutenant Paul
In ruined mirador
This lease on life
Can tie you down
So precious is the jagged crown

Talk to me I'll stay these vagabond nights
Walk with me someone is waiting in light

Exchanging worlds, arranging days
To suit a lover
Who'll never stay
Breakfast skies
Bring curtains down
Upon a crumbling lacquered gown
A crumbling lacquered gown

Talk to me as to these vagabond nights
Walk with me someone is waiting in light



Sendi henni Xiujun Wang hattasölukonu frá Kína tölvupóst og þakkaði henni fyrir mig, það verður gaman að sjá hvað hún segir..
Eftir þessi 3 ár í Þýskalandi var ég farinn að venjast því að horfa ekki á sjónvarp nema mjög sjaldan, og alls ekki ef efnið var talsett svo nú þegar ég kem heim þá sé ég allt þetta helvítis ameríska rusl sem lýðurinn hér gleypir af meiri áfergju en hinir meintu allsherjarvitleysingar ameríkanar. Idol, Friends, Sex in the city, Survivor, Bachelor osfrv. þvílíkt heilalamandi andskotans krapp sem er eins viku eftir viku eftir viku, það gerist í Friends í hverri viku að Joey gerir eitthvað heimskulegt, Chandler setur upp þjáningarsvip eins og hann sé með harðlífi og einhver stelpan er voða gribba og ein ofsa heimsk..... Skil ekki fólk sem finnst sami brandarinn alltaf jafn fyndinn þá það sé að heyra hann eða sjá í fimmtíuþúsundasta skipti.. Idol er svo dæmi um lágmenningarsykurviðbjóð af hallærislegustu gerð, þar sem tilgerðin og leiðindin eru svo kolsikk að það hálfa væri nóg....
Mín hugmynd að sjónvarpsþætti er sú að loka einn bekk úr einhverjum menntaskólanum inni í mánuð og gefa þeim ekkert að éta nema þorramat og enga tónlist ekkert sjónvarp allan þennann tíma og bara íslendingasögurnar að lesa.....þau sem ekki dræpust úr hungri mundu drepast úr leiðindum, það er svo skemmtilegt........

fimmtudagur, október 02, 2003

Jæja verð að fara að losa mig við eldgamla ammælispakkann til hennar Þórdísar sætu sem ég er ekki enn farinn að drullast með á pósthúsið, bætti reyndar í hann góðgæti úti í Munica sem ég veit að henni þykir voða gott.....veit bara ekkert hvar hún býr ?!?!
Loksins lioksins það sem allir hafa beðið eftir !!! hægt er að rífa sig við mig hér á síðunni...einnig var mér kennt að linka svo hér kemur trúmálasíðan yndislega..
Skólinn byrjar eftir einn og hálfan tíma... vei!!
Mikið varð ég ánægður að hann Þórarinn V. skuli vera lögfræðingur Impregilo, þar hæfir skel kjafti ! drullusokkur í vinnu hjá skíthælum..

En það er eitt sem mér finnst sko skrýtið....og það er afhverju Hannes Hólmsteinn skrifar ekki bara ævisögu síns sjálfs frekar en Halldórs Laxness og dregur ekkert undan ! Flottast væri ef Irwin Welsh (skoti sem reit Trainspotting,Filth og nú síðast Porno) myndi skrásetja hana og lýsa vel svefnherbergisæfingunum hans !...ojjj þarna gekk ég fram af sjálfum mér.........kotze
Fjöldamargar konur hafa komið að máli við mig og vilja fá myndir af mér bæði nöktum og ekki nöktum á síðuna en því miður býður þetta kerfi bara ekki upp á svoleiðis....
Var í afmælisveislu hjá Möggu og Bjarna frænda..... það er gott og gaman bæði vegna þess að þau eru indæl og Magga er evrópumeistari í flokki atvinnumanna í baxtri og brauðtertusmurningi.

miðvikudagur, október 01, 2003

Hvers vegna borga ekki allir tíund? Það er vegna þess að tíundagreiðsla er ekki lögbundin greiðsla í söfnuðunum. Þetta er trúararfur sem við hvetjum til. Sá sem borgar tíund frelsast frá ágirndinni -sem er skurðgoðadýrkun og þrjóska (ekki er hún betri en galdrasynd)- og gengur inn í fyrirheit Guðs um blessun. Segir ekki Biblían að blessun Drottins hún auðgar og erfiði mannsins bætir engu við hana. Viljirðu mæta á samkomu þar sem þú færð eitthvað frá Guði láttu hann sjá að þú kunnir að meta hans gjafir. Tíundin hastar á átvarginn, flysjarann og skrælarann. Nú veistu af hverju skortur kemur yfir okkur. Guði er ekki treyst fyrir ofurlitlum fjármunum. Er það ekki til skammar og staðfesting á vantrú? Vertu trúaður, lesandi góður!

Þetta las ég í dag á netinu !!!! Er þetta mannerkifífl sem þetta röflar ekki réttdræpur hvar sem í hann næst ?? Þetta segir sumsé að Guð sé gjaldkeri ofsatrúarsöfnuðarins hans og þetta fari ekki í rekstur og kaupið hans sjálfs....... En skoðið þetta allavega www.jesuschristsuperstore.net er mjög góð síða :-) en munið bara að þið eruð ekki trúuð nema borga fyrir....