þriðjudagur, október 14, 2003

Það er risið Íþróttahús á Bíldudal !!! Þvílík lyftistöng fyrir bæjarfélagið að það skuli vera risið 100 milljóna íþróttahús !!! Á Bíldudal þrífst ekki matvöruverslun. Helmingur allra húsa á Bíldudal eru í stórhættu vegna ofanflóða og verður ríkið að kaupa þau ef ekki verður byggður varnargarður fyrir ótalda milljarða króna. Það er enginn kvóti á Bíldudal. Kvótinn fékk ekki vængi og flaug í burtu sjálfur, nei hann var seldur af skammsýnum mönnum sem væla nú yfir því að börnin þeirra eigi enga lífsvon og bla bla bla. Hvenær er nóg komið af kjaftæði og hvað þarf staður að vera óbyggilegur og ömurlegur til að fólk fari bara í burtu og leyfi þessum andskota að fenna í kaf í friði ? Einfaldast væri að kaupa húsin af fólkinu á markaðsvirði og leyfa því að setjast að annarsstaðar td. í Hafnarfirði...

Engin ummæli: