fimmtudagur, október 23, 2003

Ég fór í Vesturbæinn í dag ! Það var gaman og náði að losna við hlut sem er lengi búinn að vera hjá mér og tók réttur eigandi við með bravúr...
Bróðir minn yndislegur var rétt í þessu að segja mér að snjókoma væri í Efrisleiksheimi í nágrenni Munkaþverár iss hvað ég hefði orðið seinn í vinnuna á morgun S-Bahn menn eru aldrei tilbúnir í fyrstu snjóum. Ég er reyndar aldrei tilbúinn á morgnana en það er nú önnur saga....
Ég var að frétta að hún Finney Rakel byggi í grennd við München !!! Það er ljótt að segja mér svona seint frá svona hlutum vegna þess að ég hefði viljað sýna henni leðurblökurnar í Enska garðinum í myrkri ég er hrikalega góður íðí......... Já ekkert fara að glotta neitt ég er nú að verða menntaður leiðsögumoðerfokker...ehemm..

Annars var fuglafræði í skólanum í kvöld þar var reyndar ekkert talað um furðufugla en mig vantar einmitt mest að vita meira um svoleiðis......fugla.
Sumar konur eru svo frekar að þær súrna uppúr og niðrúr...

Engin ummæli: