fimmtudagur, október 09, 2003

Kom frá Klaustri á miðnætti í gær og keyrði þá beint uppí Borgarnes til hans Hrannars og við vöknuðum svo alltofsnemma og fórum á gæs. Þetta var bara fínt hjá okkur og náðum við 31 gæs sem er bara ansi vel af sér vikið miðað við að það var tjöruvitlaust veður og skotin voru eitthvað óhittin, förum á morgun uppí Hlað að kvarta yfiressu. Þetta alltsaman varð svo til þess að ég steinrotaðist í dag um eftirmiðdaginn og fokkaði skólanum alveg.... ekki gott til eftirbreytni.
Ég las það hér á netinu að vandamálaúrlausnir eru ekki auðveldar viðfangs í genum síma og að lítil mál magnist upp við slíkar aðstæður... óskandi væri að sumir hefðu tileinkað sér þennan hugsunarhátt fyrr og fengið þannig skýrari mynd í kollinn. Sannast hið fornkveðna : Enginn veit fyrr en reynt hefur.........

Annars er það að frétta úr vinnunni að ég er búinn að kynnast fullt af góðum lögfræðingum og dómurum svo vel að ég er orðinn ódæmanlegur ef ég brýt eitthvað af mér, það yrðu allir vanhæfir hver um annan þverann. Skoðuðum afrétti Fljótshverfis og Síðumanna og voru allir sáttir eða þannig.. Ég er að verða einn helsti sérfræðingur Íslands í vondum vegum og troðningum sem enginn veit um nema fuglinn fljúgandi og einstaka mýs...og bændur..

Er núna að vinna þýskuverkefni með elskulegum litla bróður sem er svo góður að keyra stóra bróður sé hann fullur óvart sko...það er offsa gaman. En er bara ekkert fullur núna svo þetta er alles umsonst.
Mikið er annars yndislegt að Arnold Schwarzenegger skuli vera orðinn ríkisstjóri í Kaliforníu. Hefur einhver Íslendingur einhverntíma eitthvað haft að gera með alla hina sem hafa verið ríkisstjórar Kalifoníu á undan honum ?? Held ekki....... og að þessvegna skipti þetta okkur ekki rassgat máli hér á Íslandi og reyndar hvergi þannig séð, Kalifornía er sko ekki sjálfstætt ríki með eigin utanríkisstefnu. Ég vona að næsti governor verði Michael Jackson það myndi bíta hattinn af skömminni.....

Engin ummæli: