Mig vantar vinnu með skólanum !! Þarf að vera skemmtileg vel borguð vinna með sætum ritara og miklum fríðindum að ógleymdum djöfuldómslaunum....
Mínir helstu kostir eru að ég hef ekki enn fengið verkefni í neinni vinnu sem ég hef fokkað upp þannig að sama hvað þið hafið að bjóða lesendur góðir !! Ég treysti mér í allt. Mínir meginkostir að undanskilinni leti og óstundvísi eru .........................bíðiði aðeins er að spökulera.......... ja ok við ræðum þetta bara seinna.
Færeyingar eru Færeyingar og er Eivör Pálsdóttir voða sæt en hinir voða vitlausir !!! Það þýðir ekki að verða sjálfstæð þjóð að öllu leyti nema því að Danir borga svo bara allt saman..
Bílddælingar og Tálknfirðingar eru komnir í hár saman útaf því hvar presturinn á að vera... Ég segi Tálknafjörð ! Vegna þess að á Bíldudal er nýtt íþróttahús og hafa þeir andskotar ekkert að gera með prest líka....... eða sossum enginn ef útí það er farið.
Ég er annars búinn að upplifa mikla fegurð undanfarna daga og er það alltaf gaman..
fimmtudagur, október 30, 2003
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli