fimmtudagur, nóvember 27, 2003
mánudagur, nóvember 24, 2003
Um nýliðna helgi var ég feikna feikna fullur drengur á Suðurlandi ég fór á draugasafnið á Stokkseyri og svo á Pakkhúsið og Hvíta húsið á Selfossi það voru hljómsveitir á báðum stöðum sem ég man ekkert hvað heita og reyndar man ég ósköp lítið hvað ég gerði yfirhöfuð en veit samt að ég vaknaði á sunnudagsmorgninum inni á verkstæði í höfuðstöðvum fyrirtækisins illa til reika og búinn að eiga við meltingartruflanir.....Þetta er reyndar svo skrýtið því ég drakk bara 10 bjóra 4 rauðvínsglös og 3 tvöfalda kaftein í kók...Ég dansaði meiraðsegja...
fimmtudagur, nóvember 20, 2003
Michael Jackson er barnaníðingur !!!!! Það er nú komið í ljós enn eina ferðina að þetta himpigimpi sem á að vera löngu kominn í mjúkan klefa á einhverju vitleysingahæli hefur verið að gamna sér með börnum sem fáráðir fégráðugir foreldraómyndir hafa sent til hans til að leika við hann...... Það á að rífa allar plötur með honum úr hillum og hætta að selja allt það drasl sem frá honum hefur komið því þetta er einn sá viðurstyggilegasti glæpur sem hægt er að gerast sekur um ef ekki sá viðurstyggilegasti....
Í Fréttablaðinu um daginn var verið að tala um bankarán og að það hafi verið "sjónarvitni" að ráninu !!?? Einu sinni voru til sjónarvottar eða bara vitni, aldrei fyrr heyrt talað um sjónarvitni....
ATH !!! ATH !!! Aðeins 1500 rjúpur eftir úr þessu holli en verð búinn að redda um 5000 í viðbót fyrir jól er nefnilega búinn að útvega mér net sem ég get strengt fyrir gil og sett upp í fjallshlíðum þetta eru mikið skilvirkari aðferðir en þetta eilífa labb og fret útí loptið.... Hef einnig til sölu 3 Fálka sem festust í netinu ef einhver vill stoppa upp..

þriðjudagur, nóvember 18, 2003
Ég vill að Howard Dean verði næsti forseti Bandaríkjanna. Hann er kúl og ekki nautheimskur líkt og núverandi asni sem situr að völdum í ríkasta og valdamesta ríki heims....
Til hvers er verið að bjóða skrattanum uppí dans með því að fara í heimsókn til Blair núna ???!! Vita ekki allir að Bretar eiga í mikilli krýsu núna sem helgast af því hvar Kalli prins hefur alið manninn fyrir 30 árum !!!? Hverjum heilvita manni er ekki bókstaflega skítsama um það.... Þetta vekur reyndar upp spurningar um eyrun á Kalla prins, eru þau svona original eða er búið að toga svona mikið í þau ?? Þau eru allavega góð handföng núna..
Er ekki gráupplagt að Osama Bin Laden hræri núna vel uppí Lundúnaborg og strjúki þeim andhæris??! Þetta er held ég eina ástæðan fyrir því að þessir kallar hittist þe. að fá eina bombu til að beina augum almennings frá vandræðum sínum.
Það er alveg ljóst að ekki er Bush að fara að heilsa aðdáendum sínum í Bretaveldi og Blair á enga aðdáendur þar heldur núorðið..... Ég sting uppá því að konur verði kosnar í öll þessi stóru embætti þá hætta þessir byssuleikir kallanna og allt verður með friði og spekt nema einu sinni í mánuði... Þess ber að geta að engar sannanir liggja fyrir um að Margaret Thatcher sé kona......

Ég lærði í gær að á 12. öld hefði verið munkaklaustur á Möðruvöllum í Eyjafirði með engum öðrum og ómerkari munkum en ÁGÚSTÍNER reglunni miklu, svo illa vildi reyndar til að klaustrið brann til ösku eftir eða í drykkjuveislu mikilli.........
Das Hemd verkotzt
Die Hosn verschissen
Von gestern abend nichts mehr wissen
Die treppe auf auf alle vier
Augustinerbier
Ich danke dir
Das Hemd verkotzt
Die Hosn verschissen
Von gestern abend nichts mehr wissen
Die treppe auf auf alle vier
Augustinerbier
Ich danke dir
mánudagur, nóvember 17, 2003
föstudagur, nóvember 14, 2003
Ég fór á stórkostlega Rikshaw tónleika í gær og fannst mér bara gaman þó að þeir hafi spilað einhverja rólega píkuútgáfu af "Into the burning moon" bara á kassagítar og ramaxpíanó Scobie var enn með sítt hár en ég held bara að allir hinir hafi verið farnir að aðhyllast sömu naumhyggjustefnu í hárgreiðslumálum og ég.....Reyndar var engin stemmning í fólkinu að ráði og hefði verið betra að hafa þetta á kvöldi sem ekki þarf að vinna daginn eftir svo maður geti sé verið blindfullur...
fimmtudagur, nóvember 13, 2003
Ég keyrði Laufásveginn í gær og hef ekki keyrt hann í allavega 3 ár ég fann það út á mínum vökvastýrislausa risajeppa að honum hefur verið lokað með keðju í annan endann til að Bin Laden komi ekki og sprengi sendiráð Bandaríkjanna. Fyrir framan sendiráðið stendur svo einn Securitas maður í svörtu júniformi sem á að hindra stórfelldar hryðjuverkaárásir "Öxuls hins illa" . Hvað ætli þessi Securitaskall geti gert ef 5 handklæðahausar með innanklæðasprengjur koma organdi " Allah Akhbar" og sprengja sig svo í loft upp svo ný gígaröð á stærð við Lakagíga myndast í miðbænum.. Hann gæti ekki einu sinni hlaupið nógu hratt í burtu og myndi fórna lífi sínu fyrir 100.000 kall á mánuði og helvítið hann George W. og skósveina hans þá Dabba, Dóra og Bjössa bombu.... Heldur einhver að keðjuspotti og skúritaskall virki fælandi á einhverja sem virkilega langar til að svara þessu nýja þriðja ríki í sömu mynt þe. með tilgangslausu ofbeldi og blóðsúthellingum ???!! Ónei ekki aldeilis þetta vekur bara athygli á að þessir asnar eru þarna og ættu þeir að hypja sig annað með sitt hafurtask td. til Kebblavíkur...
Ég held að Vinstri grænir hafi verið ansi óheppnir í varaformannskjörinu jújú snótin sú er ósköp sæt en fer illa að opna munninn mikið.... Þessi flokkur er að dæma sig til eilífrar stjórnarandstöðu !!! sem er reyndar hinn skrýtni tilgangur með stofnun hans frá byrjun að því er mér sýnist.....

þriðjudagur, nóvember 11, 2003
Hef nú hafið sölu á hinum sívinsælu jólarjúpum og er síminn 5687123 til að panta !!! Hver og einn má bara kaupa 200 stykki og fæst þá 3% afsláttur af listaverði sem er 3000 kall stykkið. Vinsamlega athugið að takmarkað magn er í boði eða aðeins þessi 6000 stykki sem ég skaut og veiddi í snörur á Þingvöllum og á lendum Skógræktar Ríkisins víðs vegar um landið.....
Var að lesa að nokkrir portúgalir hafi fengið kalsár við vinnu sína uppi við Kárahnjúka og telur læknir Impregilo á svæðinu það bara vera eðlilegt ástand í velferðarþjóðfélagi á 21. öldinni....Mér finnst það ekki.
Landsvirkjun þið eruð lénsherrar þrælahaldara og hinir verstu kúkalabbar sem eruð til í selja sálu ykkar á skítaprís, gefa ömmu ykkar með (hún er ekki rekstrarlega heppileg eining) og labba með kúkinn í buxunum á millli manna og þykist vera flottir kallar á flottum jeppum.........sem mig langar í ..

sunnudagur, nóvember 09, 2003
MMMMMM..... Yndisleg helgi !!! Frábær matur og frábær félagsskapur.... Víkingar unnu Framara í Víkinni sem er mj. gott... Reyndar tapaði Liverpool fyrir scum.u. í dag en það gerðist í fjarlægu landi og fellur alveg í skuggann fyrir hinu skemmtilega.....Vantar reyndar baknudd núna er að sálast.....
Ég frétti að Einsi góði bró í Efrislípsheimi hafi haldið gott partí á föstudaginn án áfengis sem er mjög skemmtilegt og er gott að vita að ekki er allt dottið í sukk í Munkaþverá og uppsveitum þó ég sé farinn hingað heim að boða fagnaðarerindið....

föstudagur, nóvember 07, 2003
And and andleysi sem lýsir sér í miklu andleysi og enn meira and and andskotans andleysi....
Drakk annars ein dunkles weissbier í gær og það var ágætt skoðaði stelpurnar með hinu auganu og svona.. Það var ein stelpa á Thorvaldsen bara í brjóstahaldara að ofan og er það vel að konur klæði sig eins og glyðrur því þá er hægt að vita að þær eru trúlega glyðrur sem er voða slæmur kostur hjá konum........ehemm ég var nærrum farinn að trúa mér þarna um stund...... konur eru voða sætar og er alveg prýðilegt að knúsa þær dulítið...

miðvikudagur, nóvember 05, 2003
þriðjudagur, nóvember 04, 2003
Í gær var góður og hamingjuríkur dagur hjá honum Pétri vini mínum og hans fjölskyldu, tvö ljómandi falleg börn og upprennandi hafnarfjarðarkratar af bestu gerð sem eru sko aldeilis hjartanlega velkomin í heiminn...
Fallegur dagur í Reykjavík snjókoma og bylur og ekkert sést nema....uuuuu veit ekki I´ll be back on that issue.
Á morgun er ég að fara að skjóta rjúpur og er stefnan að ná nógu miklu til að geta komið út með svona 2500.000 kall gróða út úr dæminu, þetta er fínt vegna þess að það er enginn að þessu nema ég og er ég þegar búinn að skjóta 160 stykki á Þingvallasvæðinu verð að ná svona 500 í viðbót og selja á 2500-3000 kall þá er þetta gott..

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)