þriðjudagur, nóvember 18, 2003

Ég vill að Howard Dean verði næsti forseti Bandaríkjanna. Hann er kúl og ekki nautheimskur líkt og núverandi asni sem situr að völdum í ríkasta og valdamesta ríki heims....
Til hvers er verið að bjóða skrattanum uppí dans með því að fara í heimsókn til Blair núna ???!! Vita ekki allir að Bretar eiga í mikilli krýsu núna sem helgast af því hvar Kalli prins hefur alið manninn fyrir 30 árum !!!? Hverjum heilvita manni er ekki bókstaflega skítsama um það.... Þetta vekur reyndar upp spurningar um eyrun á Kalla prins, eru þau svona original eða er búið að toga svona mikið í þau ?? Þau eru allavega góð handföng núna..

Er ekki gráupplagt að Osama Bin Laden hræri núna vel uppí Lundúnaborg og strjúki þeim andhæris??! Þetta er held ég eina ástæðan fyrir því að þessir kallar hittist þe. að fá eina bombu til að beina augum almennings frá vandræðum sínum.
Það er alveg ljóst að ekki er Bush að fara að heilsa aðdáendum sínum í Bretaveldi og Blair á enga aðdáendur þar heldur núorðið..... Ég sting uppá því að konur verði kosnar í öll þessi stóru embætti þá hætta þessir byssuleikir kallanna og allt verður með friði og spekt nema einu sinni í mánuði... Þess ber að geta að engar sannanir liggja fyrir um að Margaret Thatcher sé kona......

Engin ummæli: