Hef nú hafið sölu á hinum sívinsælu jólarjúpum og er síminn 5687123 til að panta !!! Hver og einn má bara kaupa 200 stykki og fæst þá 3% afsláttur af listaverði sem er 3000 kall stykkið. Vinsamlega athugið að takmarkað magn er í boði eða aðeins þessi 6000 stykki sem ég skaut og veiddi í snörur á Þingvöllum og á lendum Skógræktar Ríkisins víðs vegar um landið.....
Var að lesa að nokkrir portúgalir hafi fengið kalsár við vinnu sína uppi við Kárahnjúka og telur læknir Impregilo á svæðinu það bara vera eðlilegt ástand í velferðarþjóðfélagi á 21. öldinni....Mér finnst það ekki.
Landsvirkjun þið eruð lénsherrar þrælahaldara og hinir verstu kúkalabbar sem eruð til í selja sálu ykkar á skítaprís, gefa ömmu ykkar með (hún er ekki rekstrarlega heppileg eining) og labba með kúkinn í buxunum á millli manna og þykist vera flottir kallar á flottum jeppum.........sem mig langar í ..
þriðjudagur, nóvember 11, 2003
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli