mánudagur, desember 29, 2003

Ég er skrýtinn drengur sem fer í baklás ef eitthvað í bíó verður "hype" eins og núna Lord of the rings allir verða að sjá þetta og blablabla æðislegt ég varð fyrst var við þetta með Titanic og hefur tekist að forðast þetta hingað til. Ég las bækurnar sem barn og þótti gaman og mörgum þótti við vinirnir undarlegir að vera að þessu en nú eru allir farnir að babla um þetta og Viggo Mortensen meiraðsegja orðinn að kynþokkafyllsta manni sólkerfisins en fyrir 3 árum þekkti hann ekki neinn, ég man reyndar eftir honum í hlutverki Satans í einhverri B-mynd fyrir ca. 7 árum "hæpið" er orðið allt of mikið fyrir minn smekk í öllu þessu drasli. Heldur einhver að svona tölvuteiknað dót verði einhvers virði þegar fram líða stundir ? ónei !! Matrix, Harry Potter, Lord of the rings, og allt nýja Star Wars draslið verður gleymt in a heartbeat..... Pulp Fiction og Kill Bill hinsvegar munu lifa því þar er engin tölvuteiknitæknibrellubúllsjittóverlód heldur bara einföld snilld og flott músík með...

föstudagur, desember 26, 2003

Jæja er búinn að borða í miklu óhófi og er farið að verkja í.........jæja nóg um það.....
Ég vill taka það fram að í dag eru engir KR-ingar í landsliðinu en ég mun beita mér fyrir því sem forseti að Kristín fái að velja einn svoleiðis í hvert sinn....
Einnig ber að taka það fram að hver sá sem lýsir yfir stuðningi við forsetaframboð mitt fær fálkaorðuna og sæti í heiðursstúkunni á landsleikjum...

þriðjudagur, desember 23, 2003

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og friðar á nýju ári.
Merry Christmas and may next year be better.
Frohe Weihnachten und hoffentlich wird Bier nicht teurer.
Glædelig jul og ha det godt med sovse......

mánudagur, desember 22, 2003

Gleymdi að taka fram að það kostaði 3700 krónur fyrir mig að fá ríkið til að segja sér að ég er ekki glæpanauðgidónaperri og megi halda áfram þar sem frá var horfið... Þarna væri gott að skera niður í opnberri stjórnsýslu og skjóta allt þetta pakk sem vill hafa þetta svona..
Brjálað veður í borginni og allt í fokki svaf í allan dag eftir að hafa sett met á laugardagskvöldið hvað varðar magn vergra ekinna fyllibyttna heim til sín og eða annarra. Það á að gera það að skyldufagi í skólum að krakkar sjái hvernig áfengisneysla fer með fólk..... Ótrúlegt helvítis bull og rugl sem fólki getur dottið í hug td. rík fín og falleg frú af Arnarnesinu hágrenjandi útaf einhverri annarri kellingu, vaxtarræktarmaður í afbrýðissemikasti (það var flott atriði og gerir Pétri Péturssyni lækni rétt til ) einn hálfviti sem ekki á pening fyrir Taxa í Breiðholtið en er samt að eigin sögn stjórnarformaður Nýherja sem býr tímabundið í bæjarblokkunum í Jórufellinu.....alltsaman asnar.
Tóta lilla sys aka. "The Cleavage of the Clan" er víst as we speak að koma í bæinn ásamt fríðu föruneyti og er það gaman.

fimmtudagur, desember 18, 2003

Leikmaður Víkings er í landsliðinu í handbolta !!!! það hefur ekki gerst lengi og ber að fagna því sérstaklega.. Einnig ber að geta þess að drengurinn sá er uppalinn á fallegum stað í smáíbúðahverfinu þe. Mosgerði 11 en úr Mosgerði 9 þekki ég einn mikinn snilling...
Ef ég verð forseti verða alltaf nokkrir Víkingar í landsliðinu en KR-ingum verður haldið í algjöru lágmarki...
Jæja góðir hálsar er búinn að ákveða að bjóða mig fram til forseta lýðveldisins ef enginn annar sem mér líst á ætlar fram, nú ef Óli fer fram þá nenni ég ekki að böggast í honum enda mundi það ekkert þýða..
Þetta er ágætlega borguð þægileg innivinna og maður fær flottan bíl til umráða þar sem maður getur verið fullur afturí rúntað og hösslað feitt...
Ég er altalandi á fullt af tungumálum og hef komið til útlanda hef einnig næmt auga fyrir listum og svoleiðis nokk.....
Nú vantar mig 1500 meðmælendur og geta þeir skráð sig hér á síðunni, þess ber að geta að allir þeir sem styðja mig verða boðnir í gott partý á Bessastöðum ef allt gengur vel...

þriðjudagur, desember 16, 2003

Jæja krakkar þá er runnið nóg af mér svo ég er blogghæfur aftur, hef reyndar ekkert að segja í augnablikinu svo þetta er ekkert stórmál.
En ég datt sumsé íða á litlu jólunum í skólanum en var voða góður og blíður.....

þriðjudagur, desember 09, 2003

Löggan á Patró eru bara barnaníðingar og er það trúlega vegna nágrennis þeirra við Bíldudal því eins og við vitum er sá staður vagga djöfulsins og finnst mér að júniformklæddu geðsjúklingarnir á Ómega (Hjálpræðisherinn) eigi að fara westur og bomba þetta pleis. Veit Björn Bjarnason ekki af þessum her eða hvað ??!

Hinn árlegi eggjakastdagur verður haldinn á morgun og byrjar á því að dreift verður eggjum sem eru komin fram yfir síðasta söludag við Hallgrímskirkju, þaðan verður marserað með kröfuspjöld að eigin vali niðrað bandaríska sendiráðinu og grýtt fáeinum eggjum í húsið og þá sem koma út eða fara inn. Eftir þetta er "frjálst kast" þe. þáttakendur mega henda eggjum í allt það sem fer í taugarnar á þeim nema mig ég er í stikki.......

Ég er búinn að vera með meirapróf bifreiðastjóra í 10 ár og hef unnið mikið við farþegaflutninga þennan tíma. Ég er búinn að vera með leyfi til að eiga og nota hálfsjálfvirka haglabyssu og riffil af stórri hlaupvídd álíka lengi.
Ég var í 3 ár í Þýskalandi að vinna og drekka bjór og þegar ég kem heim núna og vill fara að keyra leigubíl aftur þarf ég að sýna sakavottorð og fá eitthvað nýtt skírteini sem sýnir að mér sé treystandi til að umgangast fólk án þess að reyna að koma fram einhverjum vilja mínum á því. Spurningin er bara þessi "Ef ég er glæpaspírunauðgari veit ekki opinbera stjórnsýslan allt um það ?" þarf ég bara að borga þeim 2000 kall til að þeir geti sagt sér það sjálfir sem þeir vita nú þegar..... Ég er nefnilega viss um að ef ég væri glæpon hættulegur umhverfinu væri búið að taka af mér minn fallega Remington 11-87 Premier og leyfið til að eiga hann......Bottomline er : Ég er með þessi réttindi og er búinn að borga fyrir þau, hef aldrei gerst sekur um neitt sem gæti fokkað þessu nema ef það sé bannað að skoða útlenskar túristastelpur og vill ekki borga aftur.....Þetta fer að verða eins og í Þýskalandi þar sem þarf stimpluð skírteini til alls eins og hið frábæra "Anglerschein" sem sýnir fram á að skírteinishafi kunni á veiðistöng og að blóðga fisk...
Hið opinbera á vissulega að fylgjast með að ekki séu dónaperrar að komast í þá aðstöðu að geta verið með farþega aleina á valdi sínu en hið opinbera á líka að vita að ég hef gert þetta í 10 ár og er treystandi....Helvítis motherfokkerar..

laugardagur, desember 06, 2003

mánudagur, desember 01, 2003

Ég rakaði af mér skeggið í fylleríi um daginn og er nú arschkalt í framan ef ég fer út....Mér sýnist að ástandið í þjóðfélaginu sé orðið það geggjað að leyfa eigi að skjóta alla öfgamenn....Ég þarf að komast í betra púst þetta er farið að há mér við íþróttaiðkun......