Brjálað veður í borginni og allt í fokki svaf í allan dag eftir að hafa sett met á laugardagskvöldið hvað varðar magn vergra ekinna fyllibyttna heim til sín og eða annarra. Það á að gera það að skyldufagi í skólum að krakkar sjái hvernig áfengisneysla fer með fólk..... Ótrúlegt helvítis bull og rugl sem fólki getur dottið í hug td. rík fín og falleg frú af Arnarnesinu hágrenjandi útaf einhverri annarri kellingu, vaxtarræktarmaður í afbrýðissemikasti (það var flott atriði og gerir Pétri Péturssyni lækni rétt til ) einn hálfviti sem ekki á pening fyrir Taxa í Breiðholtið en er samt að eigin sögn stjórnarformaður Nýherja sem býr tímabundið í bæjarblokkunum í Jórufellinu.....alltsaman asnar.
Tóta lilla sys aka. "The Cleavage of the Clan" er víst as we speak að koma í bæinn ásamt fríðu föruneyti og er það gaman.
mánudagur, desember 22, 2003
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli