fimmtudagur, desember 18, 2003

Jæja góðir hálsar er búinn að ákveða að bjóða mig fram til forseta lýðveldisins ef enginn annar sem mér líst á ætlar fram, nú ef Óli fer fram þá nenni ég ekki að böggast í honum enda mundi það ekkert þýða..
Þetta er ágætlega borguð þægileg innivinna og maður fær flottan bíl til umráða þar sem maður getur verið fullur afturí rúntað og hösslað feitt...
Ég er altalandi á fullt af tungumálum og hef komið til útlanda hef einnig næmt auga fyrir listum og svoleiðis nokk.....
Nú vantar mig 1500 meðmælendur og geta þeir skráð sig hér á síðunni, þess ber að geta að allir þeir sem styðja mig verða boðnir í gott partý á Bessastöðum ef allt gengur vel...

Engin ummæli: