föstudagur, janúar 30, 2004

Ég var að velta fyrir mér hvernig grunnhugmyndin að launaútreikningi er..... Auðvitað ber að taka inn menntun og reynslu en ekki síst þá ábyrgð sem á starfsmanninum hvílir.
Læknar eru feikna vel borgaðir en ráða reyndar sjálfir eftirspurninni eftir sjálfum sér að nokkru leiti....Flugmenn eru líka mjög vel borgaðir enda taka þeir mikla ábyrgð... Rútubílstjórar eru hinsvegar ekki vel borgaðir þó þeir taki eins mikla ábyrgð ef ekki meiri en flugmenn !! Af hverju ?? Jú flugmenn eiga minni hættu á því að lifa slys sem þeir valda af og þurfa þar með að taka afleiðingunum..... Rútubílstjóri með 50 börn á leið niður Kambana í hálku ber meiri ábyrgð á herðum sér heldur en nokkur starfsstétt hér á landi.....Ein mistök og hræðilegt stórslys með mörgum töpuðum mannslífum getur orðið...Ég vil reyndar benda á að það eru margar fleiri varhugaverðar brekkur í vegakerfi landsins og að minnsta kosti ein í nágrenni við hvert byggt ból..... Annað dæmi : Færasti heilaskurðlæknir í heimi er að gera aðgerð á einhverjum kalli !! Ein mistök og kannski deyr einn einasti maður !!!! Vá hvílík ábyrgð !!! Svo má nú ekki gleyma helvítis hræsninni með elsku bestu litlu sætu leikskólakennarana sem pólitíkusar og prumpuhausar kalla ómetanlega á tyllidögum en ekki á útborgunardögum....
Hár enn harðgreipi,
Hrólfr skjótandi,
ættgóðir menn
er ekki flýja
Vekkat yðr að víni
né að vífs rúnum,
heldr vek eg yðr að hörðum
Hildar leiki.

Varð aðeins að birta eitt ljóð eftir Þormóð Bersason Kolbrúnarskáld...
Jæja skilaði ritgerðinni minni úr Fóstbræðrasögu í gær og las hana fyrir bekkinn... þurfti meiraðsegja að gera hlé tvisvar á lestrinum vegna hlátraskalla en það er bara jákvætt finnst mér....
Ég fékk ekki einn einasta einn junkmail síðastliðinn sólarhring og hefur slíkt ekki gerst áður...
Það er ekkert merkilegt að frétta annars og er Mogginn hálftómur og aðalfréttin á baksíðunni er um nytarhæstu belju landsins og forsíðan segir frá að Kasparov og Karpov séu að koma til Íslands að tefla sumsé ekki nein stórtíðindi..

föstudagur, janúar 23, 2004

Fyrst af öllu þá á ósköp falleg stelpa ammæli í dag og ber að fagna því....

Ég legg reyndar til að stjórnmálasambandi við Slóvena og hvaðan sem þeir voru dómaranir í gær verði slitið og teknar verði upp viðræður við George Bússj um hvort ekki eru gereyðingarvopn þarna og henda beri nokkur hundruð sprengjum þarna...... Þeir slökktu á Lofsöngnum áður en EILÍFÐAR SMÁBLÓMIÐ með titrandi tár fékk að tilbiðja guð sinn og deyja.....Hvílík útspekúleruð sálarstríðsherkænska hjá þeim að spila bara 3/4 af þjóðsöngnum !!! Íslenska liðið spilaði þá bara 3/4 af leiknum í staðinn.......Það vantaði tilfinnanlega Víkinga inná í gær þegar Valsararnir voru allir að kúka í buxurnar fyrir Íslands hönd........

Ég dreg hérmeð stuðning minn við Howard Dean til baka sem forsetaefni Demókrata JFK er heppilegri vegna þess að hann getur fræðilega unnið fíbblið hann GW og það er það eina sem skiptir máli fyrst um sinn, að koma þessu kolvitlausa erkifífli og heimskingja frá. Howard Dean er of vinstrisinnaður sem er að vísu ekkert slæmt, en hans tími er ekki kominn, Kerry er betur fallinn til að berja á Bússj núna.......

fimmtudagur, janúar 22, 2004

Hahahahaha ég er svo sniðugur og mikill snillingur að það hálfa væri nóg, passið ykkur öll ég fatta alltaf allt og þá meina ég allt stundum kannski ekki alveg strax en alltaf samt.....

Helvítis kommentakerfið er dottið út og þarf víst að gera eitthvað svaka jaka til að það virki.....nenni þí ekki.

þriðjudagur, janúar 20, 2004

Jæja eftir allan reiðilesturinn um Landsvirkjun og þeirra pakk hefur allt verið frosið hérna, síðan ekki opnast og engin götulýsing í hverfinu.....

Ég horfði á lokaþátt Idol á föstudaginn í dýrasta áskriftarsjónvarpi í heimi og það voru auglýsingar í 80 !!!!! mínútur af þeim 180 sem þetta tók....180 mínútur að syngja 4 lög þar af eitt tvisvar og eitt þrisvar sumsé max 25 mín. af tónlist..... Í Júróvisjón sem er álíka lágkúra eru 20 flytjendur sem flytja 20 lög og allt húllumhæið tekur 120 mín.....
Fyndið því að þátturinn var annars hundleiðinlegur vegna þess að sjálfumglöðu stjórnendurnir kunna ekkert í sjónvarpi annað en þylja hvað er næst osfrv. Til hvers í andskotanum var verið að sýna frá einhverjum ferðum til Amsterdam og Akureyris (viljandi misritun) þar sem ekkert gerðist nema allir brostu !! Viðtölin voru hörrrrrmung engin gat sagt neitt af viti hvorki spyrlar né viðmælendur og þegar farið var að teygja lopann sem mest í restina urðu þáttastjórnendurnir bara aumkunarverðir..... Sá sem vann er ágætur en það verður að viðurkennast að annar eins söngvari hefur nú alveg sést undir sólinni og býst ég við að margir betri söngvarar og lagasmiðir hafi ekki haft áhuga á að taka þátt í amerískri skyndimenningarniðursuðu.... sem er gott !! En skrýtið að Íslendingar skuli hafa ákveðið að kalla þetta Idol !? Idol er nefnilega ekkert tengt við íslensku og er ekki einu sinni notað sem sletta !!! Þjóðverjar höfðu allavega rænu á að þýða sína útgáfu, en prumpuhausarnir hér ekki.....

miðvikudagur, janúar 14, 2004

Þeir halda áfram að tala um hvað íslendingar eru miklir hersnillingar í blöðunum í dag, að finna sprengikúlurnar hættulegu sem bandaríkjamenn seldu írökum til að henda í írani !!!! ASNAR og HÁLFVITAR......!!!!!
Það er flott statistik gefin upp í Fréttablaðinu í gær, þar er sagt að bankaræningjar náist alltaf en búðar og sjoppuræningjar sleppi oft..........gott fyrir þá dópista og vitleysinga sem hyggja á rán að vita þetta....

Ef einhver góðhjartaður einstaklingur nennir að skrifa fyrir mig ritgerð um Fóstbræðrasögu 4-6 bls. látið mig endilega vita....
Námið gengur annars merkilega vel. Jarðfræðin sem ég var alveg rosalega hræddur um slapp mirasegja með glans, verð hinsvegar að fara að komast í þýskt samtalskjaftæði svo ekki gleymist nú allt húllumhæið.....

þriðjudagur, janúar 13, 2004

mánudagur, janúar 12, 2004

Fór á mjög góða og skemmtilega mynd í gær sem heitir "in the Cut" eða á íslensku "Inni í Kött" skemmtilega rough og köld en samt hlý og fín að ógleymdri íslenskri tónlist xtreme sem gaf henni heimilislegt yfirbragð... Meg Ryan óx mjök í áliti eftir þessa frammistöðu og vonandi gerir hún fleiri svona myndir er greinilega bara sóun að hafa hana endalaust vælandi í eh. rómómombójombó bullshitti.....Flottasta setning myndarinnar kemur er aðalpersónurnar eru að ræða um mismunandi hæfileika kvenna til að veita karlmönnum kynferðislegan unað með munninum "Some women have no sense of cock whatsoever !" Ég er dauðöfundsjúkur að mér skyldi aldrei hafa dottið þetta í hug sjálfum....

Hannes Hólmsteinn og hans meinti ritstuldur er eitt það ómerkilegasta japl jaml og sparðatýnslutittlingaskítsröfl sem ég hef heyrt um hin seinni ár persónulega finnst mér HHG hundleiðinlegur en þetta röfl alltsaman er búið að slá öll leiðindamet.....

Eru allir orðnir geggjaðir í smáborgaraviljavera eitthvað brjálæði !?! Viljum við virkilega láta það fréttast að það hafi verið Íslendingar sem fundu vopnin sem eiga að réttlæta innrás Bandaríkjanna og Bretlands í Írak og morð á þúsundum saklausra barna, kvenna og karla. Grunur leikur reyndar á að þetta hafi allt verið fundið fyrir nokkrum árum en enginn haft stórar áhyggjur þá og sýnist mér ekki á myndunum að hægt hafi verið að skjóta þessu nema í mesta lagi með handafli yfir götuna hvað þá alla leið til Bandaríkjanna og ógna þar með GW Fíbbli....

Ég verð aðeins að arga á þá sem standa fyrir eyðileggingu hálendisins til þess að við getum flutt inn ódýrt vinnuafl frá einhverjum útlöndum... Til hvers vantar álver ??? Stór verksmiðja er ekki það eina sem nútímafólk vill fá útúr lífinu og setur sem skilyrði fyrir búsetu sinni á einum eða öðrum stað... Hvaða rétt hefur ein kynslóð fólks eða öllu heldur uþb. hálf kynslóð fólks til þess að eyðileggja ósnortna náttúru landsins ?!? Ég vil benda á að þetta eru óafturkræfar skemmdir á landslagi sem hefur tekið 7 milljón ár að mynda og er nú búið að eyðileggja það beyond repair á einu hausti... Við getum þakkað þetta gamaldags og úrsérgengnum stjórnmálamönnum og konum sem ætti að setja í gapastokk á Austurvelli og Jón Ásgeir fengi að selja egg sem eru komin fram yfir síðasta söludag til að henda í liðið...
Til að bíta hattinn af skömminni er Ítalska mafían ráðin til að byggja óhræsið, finnst mér það reyndar passa vel við að fá glæpamenn til að fremja glæpi.... Þetta Ítalska mafíufyrirtæki hefur verið gert brottrækt frá nokkrum Afríkuríkjum sem eru þó þau spilltustu í heimi þegar kemur að mútum, vegna tilrauna þeirra til að múta sér leiðir að góðum verkum. Þetta verður til þess að mig grunar að Landsvirkjunarmenn sem eru þekktir að öllu öðru en fullkomnu siðgæði hafi opnað vasa sína og svissneska bankareikninga fyrir smurgreiðslum frá Impregilo sem einmitt hafa þann virta lögfræðing Þórarinn V. Þórarinsson á sínum snærum er hann reyndar alveg nóg til þess að maður fer að hata allt þetta pakk sá smámælti sjálfumglaði sökker.....(Væri gaman að heyra hann sjálfan lesa síðustu setninguna)

laugardagur, janúar 10, 2004

Mikið er nú notalegt að það séu komin lög í henni ameríku um að það sé hægt að súa þeim sem senda manni spampóst það hefur fækkað úr 50 á dag í 1 og þessum eina í dag ákvað ég að svara, þetta var tilboð um að láta strika mig út af vanskilaskrá í USA og hvernig ég gæti orðið voða voða ríkur, svarið mitt var þetta
"Hi and happy new year.. How the fuck fuck fuck fucketty fuck am I living in Icelend supposed to get an American dept relief from you ??? I have never even been to the US..You may if you like send me a scrillion dollars but that´s about all´I want from you. I don´t want more e-mails and will take some action if you send me anything else than cash you mothafucker.
My address is : Icehouserow the Igloo with the blue and green checkered flag.
Out of principle I don´t want to have any business with the USA due to your imperialistic policy against other free countries of this world.... But if you do send me a scrillion dollars I might reconsider and buy a fine Cadillac Escalade for my ass.
Sincerly mine Pétur."
Nú er bara að sjá hvað gerist........
Það var prýðisgaman í gær þangað til kona ein allljót og vitlaus sakaði mig um að vera dópisti og að hún sæji það á mér að ég væri uppdópaður !! Og ég bara á fjórða bjór!!! Hvílíkur víðáttufáviti sem þessi trunta er og hananú nenni ekki að skrifa lengri lýsingu á þessu núna en djö.. sem mér dettur margt ljótt í hug um hana..... En að sama skapi fallegt um aðra..

fimmtudagur, janúar 08, 2004

Jæja nú er allt farið að ganga sinn vanagang aftur nema ég og það eiga allir svo ofboðslega að halda svo þvílíkt kjafti aþþþí ég er svooooo tæpur á pirrrrringnum núna að ég gæti lamið Gussa bara for the hell of it !!! Ætli það þegar maður var að lemja Gussa hafi verið einelti ??? Örugglega :-/ .....jæja andskotinn ekkert sem ég get gert í því núna nema.......fyrirgefðu Gussi minn ég var á gelgjuskeiðinu..
Hrafn sonur vor er farinn til Stuttgart again og er mikill missir að svona myndarlegum mönnum hér á landi....
Ég fékk erótískar pönnukökur í gær og þær voru voða góðar....

mánudagur, janúar 05, 2004

Gleðilegt ár kæru vinir nær og fjær og þakka það gamla.
Kristín í München benti mér á nýjar víddir í statistikinni sem hefðu trúlega dugað mér til sigurs í forsetakosningunum en þar sem komið var í ljós að ég er ekki nógu gamall í þetta þe. mig vantar eitt ár til að geta orðið forseti þá nota ég þetta bara eftir 4 ár...Skrýtið að forsætisráðherra þurfi ekki að hafa lágmarksaldur þar sem hann getur gert mikið meira af sér en forsetinn sem ekkert má nema dreifa fálkaorðum í kringum sig...
Skaupið var ekkert frumlegt og má alveg gera grín að einhverju öðru en pólitíkusum og ég horfði ekki á myndina hans Hrafns Gunnlaugssonar vegna þess að hann er löngu búinn að sanna fyrir mér að hann gerir hundleiðinlegar myndir.....
Ég er búinn að lesa töluvert í bókinni um hann Steinólf Lárusson í Ytri Fagradal og það er gaman..
Ég fékk vúdúdúkku með prjónum í jólagjöf svo að nú skulu allir passa sig og vera góðir við mig annars vúdúa ég your ass....
Talandi um rassa mmmmmmmmmmmm......