mánudagur, janúar 12, 2004

Fór á mjög góða og skemmtilega mynd í gær sem heitir "in the Cut" eða á íslensku "Inni í Kött" skemmtilega rough og köld en samt hlý og fín að ógleymdri íslenskri tónlist xtreme sem gaf henni heimilislegt yfirbragð... Meg Ryan óx mjök í áliti eftir þessa frammistöðu og vonandi gerir hún fleiri svona myndir er greinilega bara sóun að hafa hana endalaust vælandi í eh. rómómombójombó bullshitti.....Flottasta setning myndarinnar kemur er aðalpersónurnar eru að ræða um mismunandi hæfileika kvenna til að veita karlmönnum kynferðislegan unað með munninum "Some women have no sense of cock whatsoever !" Ég er dauðöfundsjúkur að mér skyldi aldrei hafa dottið þetta í hug sjálfum....

Hannes Hólmsteinn og hans meinti ritstuldur er eitt það ómerkilegasta japl jaml og sparðatýnslutittlingaskítsröfl sem ég hef heyrt um hin seinni ár persónulega finnst mér HHG hundleiðinlegur en þetta röfl alltsaman er búið að slá öll leiðindamet.....

Eru allir orðnir geggjaðir í smáborgaraviljavera eitthvað brjálæði !?! Viljum við virkilega láta það fréttast að það hafi verið Íslendingar sem fundu vopnin sem eiga að réttlæta innrás Bandaríkjanna og Bretlands í Írak og morð á þúsundum saklausra barna, kvenna og karla. Grunur leikur reyndar á að þetta hafi allt verið fundið fyrir nokkrum árum en enginn haft stórar áhyggjur þá og sýnist mér ekki á myndunum að hægt hafi verið að skjóta þessu nema í mesta lagi með handafli yfir götuna hvað þá alla leið til Bandaríkjanna og ógna þar með GW Fíbbli....

Ég verð aðeins að arga á þá sem standa fyrir eyðileggingu hálendisins til þess að við getum flutt inn ódýrt vinnuafl frá einhverjum útlöndum... Til hvers vantar álver ??? Stór verksmiðja er ekki það eina sem nútímafólk vill fá útúr lífinu og setur sem skilyrði fyrir búsetu sinni á einum eða öðrum stað... Hvaða rétt hefur ein kynslóð fólks eða öllu heldur uþb. hálf kynslóð fólks til þess að eyðileggja ósnortna náttúru landsins ?!? Ég vil benda á að þetta eru óafturkræfar skemmdir á landslagi sem hefur tekið 7 milljón ár að mynda og er nú búið að eyðileggja það beyond repair á einu hausti... Við getum þakkað þetta gamaldags og úrsérgengnum stjórnmálamönnum og konum sem ætti að setja í gapastokk á Austurvelli og Jón Ásgeir fengi að selja egg sem eru komin fram yfir síðasta söludag til að henda í liðið...
Til að bíta hattinn af skömminni er Ítalska mafían ráðin til að byggja óhræsið, finnst mér það reyndar passa vel við að fá glæpamenn til að fremja glæpi.... Þetta Ítalska mafíufyrirtæki hefur verið gert brottrækt frá nokkrum Afríkuríkjum sem eru þó þau spilltustu í heimi þegar kemur að mútum, vegna tilrauna þeirra til að múta sér leiðir að góðum verkum. Þetta verður til þess að mig grunar að Landsvirkjunarmenn sem eru þekktir að öllu öðru en fullkomnu siðgæði hafi opnað vasa sína og svissneska bankareikninga fyrir smurgreiðslum frá Impregilo sem einmitt hafa þann virta lögfræðing Þórarinn V. Þórarinsson á sínum snærum er hann reyndar alveg nóg til þess að maður fer að hata allt þetta pakk sá smámælti sjálfumglaði sökker.....(Væri gaman að heyra hann sjálfan lesa síðustu setninguna)

Engin ummæli: