Fyrst af öllu þá á ósköp falleg stelpa ammæli í dag og ber að fagna því....
Ég legg reyndar til að stjórnmálasambandi við Slóvena og hvaðan sem þeir voru dómaranir í gær verði slitið og teknar verði upp viðræður við George Bússj um hvort ekki eru gereyðingarvopn þarna og henda beri nokkur hundruð sprengjum þarna...... Þeir slökktu á Lofsöngnum áður en EILÍFÐAR SMÁBLÓMIÐ með titrandi tár fékk að tilbiðja guð sinn og deyja.....Hvílík útspekúleruð sálarstríðsherkænska hjá þeim að spila bara 3/4 af þjóðsöngnum !!! Íslenska liðið spilaði þá bara 3/4 af leiknum í staðinn.......Það vantaði tilfinnanlega Víkinga inná í gær þegar Valsararnir voru allir að kúka í buxurnar fyrir Íslands hönd........
Ég dreg hérmeð stuðning minn við Howard Dean til baka sem forsetaefni Demókrata JFK er heppilegri vegna þess að hann getur fræðilega unnið fíbblið hann GW og það er það eina sem skiptir máli fyrst um sinn, að koma þessu kolvitlausa erkifífli og heimskingja frá. Howard Dean er of vinstrisinnaður sem er að vísu ekkert slæmt, en hans tími er ekki kominn, Kerry er betur fallinn til að berja á Bússj núna.......
föstudagur, janúar 23, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli