Ég var að velta fyrir mér hvernig grunnhugmyndin að launaútreikningi er..... Auðvitað ber að taka inn menntun og reynslu en ekki síst þá ábyrgð sem á starfsmanninum hvílir.
Læknar eru feikna vel borgaðir en ráða reyndar sjálfir eftirspurninni eftir sjálfum sér að nokkru leiti....Flugmenn eru líka mjög vel borgaðir enda taka þeir mikla ábyrgð... Rútubílstjórar eru hinsvegar ekki vel borgaðir þó þeir taki eins mikla ábyrgð ef ekki meiri en flugmenn !! Af hverju ?? Jú flugmenn eiga minni hættu á því að lifa slys sem þeir valda af og þurfa þar með að taka afleiðingunum..... Rútubílstjóri með 50 börn á leið niður Kambana í hálku ber meiri ábyrgð á herðum sér heldur en nokkur starfsstétt hér á landi.....Ein mistök og hræðilegt stórslys með mörgum töpuðum mannslífum getur orðið...Ég vil reyndar benda á að það eru margar fleiri varhugaverðar brekkur í vegakerfi landsins og að minnsta kosti ein í nágrenni við hvert byggt ból..... Annað dæmi : Færasti heilaskurðlæknir í heimi er að gera aðgerð á einhverjum kalli !! Ein mistök og kannski deyr einn einasti maður !!!! Vá hvílík ábyrgð !!! Svo má nú ekki gleyma helvítis hræsninni með elsku bestu litlu sætu leikskólakennarana sem pólitíkusar og prumpuhausar kalla ómetanlega á tyllidögum en ekki á útborgunardögum....
föstudagur, janúar 30, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli