Gleðilegt ár kæru vinir nær og fjær og þakka það gamla.
Kristín í München benti mér á nýjar víddir í statistikinni sem hefðu trúlega dugað mér til sigurs í forsetakosningunum en þar sem komið var í ljós að ég er ekki nógu gamall í þetta þe. mig vantar eitt ár til að geta orðið forseti þá nota ég þetta bara eftir 4 ár...Skrýtið að forsætisráðherra þurfi ekki að hafa lágmarksaldur þar sem hann getur gert mikið meira af sér en forsetinn sem ekkert má nema dreifa fálkaorðum í kringum sig...
Skaupið var ekkert frumlegt og má alveg gera grín að einhverju öðru en pólitíkusum og ég horfði ekki á myndina hans Hrafns Gunnlaugssonar vegna þess að hann er löngu búinn að sanna fyrir mér að hann gerir hundleiðinlegar myndir.....
Ég er búinn að lesa töluvert í bókinni um hann Steinólf Lárusson í Ytri Fagradal og það er gaman..
Ég fékk vúdúdúkku með prjónum í jólagjöf svo að nú skulu allir passa sig og vera góðir við mig annars vúdúa ég your ass....
Talandi um rassa mmmmmmmmmmmm......
mánudagur, janúar 05, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli