þriðjudagur, janúar 20, 2004

Jæja eftir allan reiðilesturinn um Landsvirkjun og þeirra pakk hefur allt verið frosið hérna, síðan ekki opnast og engin götulýsing í hverfinu.....

Ég horfði á lokaþátt Idol á föstudaginn í dýrasta áskriftarsjónvarpi í heimi og það voru auglýsingar í 80 !!!!! mínútur af þeim 180 sem þetta tók....180 mínútur að syngja 4 lög þar af eitt tvisvar og eitt þrisvar sumsé max 25 mín. af tónlist..... Í Júróvisjón sem er álíka lágkúra eru 20 flytjendur sem flytja 20 lög og allt húllumhæið tekur 120 mín.....
Fyndið því að þátturinn var annars hundleiðinlegur vegna þess að sjálfumglöðu stjórnendurnir kunna ekkert í sjónvarpi annað en þylja hvað er næst osfrv. Til hvers í andskotanum var verið að sýna frá einhverjum ferðum til Amsterdam og Akureyris (viljandi misritun) þar sem ekkert gerðist nema allir brostu !! Viðtölin voru hörrrrrmung engin gat sagt neitt af viti hvorki spyrlar né viðmælendur og þegar farið var að teygja lopann sem mest í restina urðu þáttastjórnendurnir bara aumkunarverðir..... Sá sem vann er ágætur en það verður að viðurkennast að annar eins söngvari hefur nú alveg sést undir sólinni og býst ég við að margir betri söngvarar og lagasmiðir hafi ekki haft áhuga á að taka þátt í amerískri skyndimenningarniðursuðu.... sem er gott !! En skrýtið að Íslendingar skuli hafa ákveðið að kalla þetta Idol !? Idol er nefnilega ekkert tengt við íslensku og er ekki einu sinni notað sem sletta !!! Þjóðverjar höfðu allavega rænu á að þýða sína útgáfu, en prumpuhausarnir hér ekki.....

Engin ummæli: