föstudagur, janúar 30, 2004

Jæja skilaði ritgerðinni minni úr Fóstbræðrasögu í gær og las hana fyrir bekkinn... þurfti meiraðsegja að gera hlé tvisvar á lestrinum vegna hlátraskalla en það er bara jákvætt finnst mér....
Ég fékk ekki einn einasta einn junkmail síðastliðinn sólarhring og hefur slíkt ekki gerst áður...
Það er ekkert merkilegt að frétta annars og er Mogginn hálftómur og aðalfréttin á baksíðunni er um nytarhæstu belju landsins og forsíðan segir frá að Kasparov og Karpov séu að koma til Íslands að tefla sumsé ekki nein stórtíðindi..

Engin ummæli: