Gvuð hvað ég er alltaf að grennast !!! Nú er mig reyndar farið að vanta pönnukökur frá pönnukökubakaranum mikla...
Hvað var einn lithái að gera á Neskaupsstað ? Er ekki skrýtið að annar lithái á sama aldri í sama krummaskuði útí hundsrassi í brjáluðu veðri hafi ekkert vitað um ferðir hans og svo var auðvitað hvorugur heimilisfastur á staðnum..... Skrýtið vegna þess að hinn dauði lithái sem var með bumbuna fulla af dópi hefur voða lítið að gera á Neskaupsstað nema kannski til að hitta annan litháa og 2 íslenska vini hans sem fóru í rómantíska helgarferð á Neskaupsstað á bílaleigujeppa í bandvitlausu veðri !?!?!
Kannski dó hann bara óvart og þeir panikuðu og hentu honum í höfnina frekar en að grafa hann einhversstaðar þar sem hann hefði ekki fundist. Hvergi er eins oft kafað og í höfnum landsins nema ef vera skyldi í Þingvallavatn...Þannig að niðurstaðan er sú að tjékka hvort þessir kónar eru með gamalt dópdrasl á sakaskránni og ef svo er þá bara loka þá inni í nokkur ár fyrir að vera helvítis asnar og fíbbl....
Pönnukökubakarinn er að dansa núna.........
fimmtudagur, febrúar 19, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli