þriðjudagur, febrúar 10, 2004

Jæja krakkkar þá er ég mættur aftur með ekkert að segja. Finnst reyndar að það mætti skjóta GW fyrir þessi ummæli að hann sé stríðsforseti.....Taktu þér þá byssu í hönd og drullaðu þér til Írak og vertu í stríði helv. bjáninn þinn.....Er samt bót í máli að hann verður bara nokkra mánuði enn forseti.....Hann tapar fyrir Kerry....


Ég er að fá mjúkan pakka sendan að norðan núna og hlakka ég voða til að sjá........

Mér til mikillar hryggðar er ég að sjá að það er allt fullt af Íhaldsmönnum í kringum mig og sumir meira að segja sanntrúaðir og farnir að skrifa í blöðin...

Ég fékk annars hvílíkt góða hugmynd í gær að ég pissaði nærrum í buxurnar... Það vita allir að einn versti og hættulegasti vegur á veturna í nágrenni Reykjavíkur er Hellisheiðin en þar er Orkuveitan okkar yndislega að fara að virkja og bora eftir ósköpunum öllum af heitu vatni á þessu frekar stóra háhitasvæði.....Þannig að elsku kallarnir mínir ég heimta snjóbræðslukerfi á Hellisheiðina eins og hún leggur sig frá Kambarótum og sem leið liggur niður Skíðaskálabrekku, þarna keyra fleiri bílar um á einum degi heldur en á einu ári um Vestfjarðagöngin og sparast þegar fram í sækir hellings peningur sem annars færi í mokstur og björgun fólks.
Þetta er alger snilldar hugdetta og finnst mér að ég eigi að fá Fálkaorðuna fyrir að spara okkur að þurfa að gera göng í gegn vegna þess að þetta er raunverulegur farartálmi í samgöngum hér á því horni sem flestir Íslendingar vilja búa á og búa á....
Ekkert mál allan veturinn að fara með túrista austur fyrir fjall :-) Ef Hekla gýs um vetur festast ekki allir uppá heiði á leiðinni heim :-) Er hægt að búa í Hveragerði eða Selfossi og vinna í bænum áhyggjuminni en áður hvort þú kemst í vinnuna :-)....

Tær snilld.....

Engin ummæli: