Jæja nú eru dópistavitleysingarnir loksins farnir að halda að þeir geti drepið hvorn annan án þess að neinn fatti.....Ég held það mundi engu breyta þótt Fíkniefnalögreglan yrði lögð niður, svo slælega standa þeir sig þessir heiðursmenn....
Eitt dæmi um þetta sem hjó nærri mér er það að um síðustu helgi var hann pabbi minn brátt sextugur barinn í götuna og sparkað í hann liggjandi af einhverjum 3 náungum sem hann hafði aldrei séð áður en þeir voru bara svo þrælspíttaðir að þeir urðu að fá útrás á einhverjum og kallinn er búinn að vera óvinnufær í heila viku...... Ef einhver veit hvað þeir heita má koma því til mín takk.. Ég vill fá að heimsækja þá og ræða þetta aðeins við þá á máli sem þeir skilja....
Líka skrýtið að ég skuli sjá að inni á Glaumbar eru allir að dópa en Löggan fatti ekkert.....
Stelpurnar mínar eru orðnar risastórar en þann 11. og 13. feb. urðu þær 10 og 12 ára !!!! Skrýtið þar sem ég eldist ekki neitt :-)
Eitt í viðbót með snjóbræðsluverkefnið mikla á Hellisheiðinni !! Það þarf ekki að vera í gangi nema bara nokkra klukkutíma á vetri til að halda Hellisheiðinni auðri komplett...
mánudagur, febrúar 16, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli