Skobbara þessir vitleysingar eru búnir að gera í brækurnar meðetta og eru nú í vondum málum..Huh að sökkva manni sem maður vill ekki láta finna í höfnina issississ vittleysingar typpleysingar...
Landsvirkjun og aðalbandamaður hennar hún Siv umhverfisterroristi eru að spökulera í að tjúna Laxárvirkjun upp svo hún verði kannski hagkvæm. Mitt álit og fleiri er að Laxárvirkjun beri að fjarlæga við þetta tækifæri og leyfa Laxá í Aðaldal að renna óáreittri sína undurfallegu leið til sjávar eins og frá upphafi tíðar þar til hún var stífluð og skemmd með þessari virkjun sem ALDREI nokkrum lifandi manni mundi detta í hug að byggja núna eða láta sig dreyma um að einhver samþykkti. Laxá í Aðaldal var með fengsælli laxveiðiám landsins fyrir virkjun og lengi vel á eftir en nú er svo komið að ekki seljast leyfin í hana og enginn fiskur fæst þó að Æðarfossarnir neðst í henni hafi verið friðaðir. Ég dreg þá ályktun náttúrunni í hag að þetta sé virkjuninni að kenna og langtímaáhrif hennar á lífríki árinnar séu nú komin í ljós þ.e. það er hrunið neðan virkjunarinnar...
Erlendum ferðamönnum sem innlendum sem horfa yfir efri hluta Laxár þar sem hún rennur úr Mývatni í áttina að Laxárgljúfrum í ótal beygjum og bugðum með ótal litlum eyjum bregður í brún þegar þeim er sagt hvernig er umhorfs hinum megin við hólinn og virkjunin tekur við.. Þetta er eitt af málunum líka, virkjunarómyndin er ekki í alfaraleið og fólk sér hana ekki. Til að lýsa þessu fyrir fólki sem ekki þekkir staðhætti mætti troða Írafossvirkjun ofaní Almannagjá á Þingvöllum.. Þetta er svipað dæmi nema lítil áhrif yrðu á veiði í Öxará, veiði er þar engin.
Það má reyndar bara vera með ólíkindum að það skuli yfirhöfuð vera hróflað við Mývatni slík einstök náttúruperla sem það er, lífríki og allt nágrennið.....
þriðjudagur, febrúar 24, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli