fimmtudagur, mars 25, 2004

Enginn skóli drjóli í kvöld en á morgun eigum við að skoða Alþing og Þjóðskjalasafnið. Örugglega gaman !!!! En hvenær verður Þjóðminjasafnsómyndin opnuð aftur eiginlega ??? Er annars fyndinn þessi menningararfsrembingur í okkur Íslendingum, eina dótið á þessum byggða og minjaöfnum okkar eru gamlar rúmbríkur fúnar í annan endann..... Aðrar þjóðir eiga miklu meira af eldgömlu dóti til að sýna gestum og gangandi en við, þessu verðum við að breyta og framleiða meiri merkilegar fornminjar, þessar sem við eigum eru svo hundleiðinlegar.. Brunnin beinagrind Njáls með bráðinn hjálm á höfði væri kúl, eins Rimmugýgi sjálf með storknuðu blóði úr síðasta vígi Skarphéðins og svona mætti lengi telja. Kóróna Jörunds Hundadagakonungs væri eins flott sem krúnudjásn okkar.....

þriðjudagur, mars 23, 2004

Jæja krakkar er nú loksins mættur aptur með obboðslega beitta þjóðfélagsrýni og annað mmmeiriháttar skemmtilegt eftir að hafa skrifað einhvern helling um helgina sem hvarf svo bara þegar ég ýtti á pöbblisj....

Öldruð móðir mín hélt Raclette partý Xtreme á sunnudaginn og át ég voða lítið eins og venjulega og það var fjör hele familíen og allt...

Ég er alltaf að keyra yfir Hellisheiðina þessa dagana og fíla þa bara djöbbli vel....doldið mikil sól á móti á morgnana en samt bara jollý, er að vinna með fínu fólki að gríðarlega skemmtilegum verkefnum.

Kæri Jóli !!! Drullastu til að setja vegrið á alla Ártúnsbrekkuna og alla leið upp að Höfðabakka áður en einhver eða fleiri drepast þarna..

Aðskilnað ríkis og kirkju strax og ekkert mehe !!!!! Mel Gibson á ekki skilið að fá krónu fyrir að sýna myndir af Jesú laminn og krossfestann. Mér finnst að í öllu þessu kristilega volæði og guðdómleik einhverra hálfvita hafi gleymst að það eru milljónir lítilla barna að svelta úti um allt....... Eins hafa öll þessi trúarbrögð og ofsatúlkun og heimska valdið öllum styrjöldum sem hafa dunið á þessum heimi... Svo bara....


Kæri Mel Gibbson... Veistu að það eru margar milljónir af sveltandi og jafnvel líka munaðarlausum börnum í heiminum, svo ef þig langar að sýna mér hvað þú og Jésú eruð góðir gefðu þeim þá allan ágóðann af Jésúmyndinni þinni og ekki reikna þér nein laun heldur vegna þess að þú ert hvort eð er búinn að þéna margmilljónföld ævilaun venjulegs manns... Ef þú gerir þetta ekki verð ég að afskrifa þig sem hræsnara og aumingja...

Pétur Sigurðsson.

miðvikudagur, mars 17, 2004

Ég er svo langmest bissí kall í heimi núna að það hálfa væri nóg !!! Vinna ,skóli og önnur vinna iss piss allt á fullu....

Mig vantar bíl, helst mjög flottan og frábæran og máann kosta svona 15 kall.....
Ég er tjónaður á hausnum eftir fólskulega árás millikassa úr MAN vörubíl úr launsátri í gær !!!! Helv....

miðvikudagur, mars 10, 2004

Jahéddna haldiði ekki að hún Xiajun Wang hattasölukona á Oktoberfest hafi barasta meldað sig aftur !!! Hún er hin hressasta og spyr mig þráfeldlega hvar ég sé í Þýskalandi svo hún geti komið í heimsókn.... Alltaf segist ég vera á Íslandi og ekkert á leiðinni til hennar en það skiptir hana engu máli svo ákveðin sem hún er í því að ég sé í Þýskalandi.... Þetta er stórfyndið því vinir mínir og kunningjar þýskir spyrja mig alltaf hvenær ég komi aftur, ég var sko kominn með 6 ára aufenhaltserlaubnis og finnst þeim með ólíkindum að einhver vilji ekki búa í Þýskalandi og fullt fullt af liði sem vill ekkert frekar en vera í bjórparadísinni að eilífu....

mánudagur, mars 08, 2004

Já hún Siv er æði !

Er annars að drepast úr leti og nenni varla að röfla neitt núna en finnst samt þessi Sérsveitarkróníka skemmtileg, þetta á að vera til að passa okkur fyrir terroristum.... Terroristar bomba ef þeim sýnist og skiptir þá engu hvort að maðurinn við hliðina á þeim heldur á byssu eða ekki.. Í Ísrael þar sem er krökkt af köllum með byssur úti á götu er sprengt langmest og með mestum "árangri"..
Svo er hitt annað mál að hvaða terrorista er ekki sama hvað er um að ske hér á þessum útnára heimsins ???

Í Tyrkjaráninu 1627 var stolið 380 manns og siglt með þau til sólríkra suðrænna landa. 35 voru keyptir úr ánauðinni þar á meðal hún Tyrkja Gudda heillin en hvað varð um alla hina ?!? Jú mikið rétt þau langaði ekki heim, enda var þetta á þeim tíma þegar niðurlæging og hnignun íslensku þjóðarinnar voru í hámarki. Til að átta sig á þessu er gott að vita að þangað til á 19 öld var ekki búið í torfbæjum heldur moldar og torf hrúgum sem voru grafnar út og sigu svo alltaf niður í jörðina...
Ef ég hefði verið uppi á þessum tíma og mátt velja hvort ég vildi hírast hér í vosbúð og almennum aumingjaskap eða sleikja sólina við Miðjarðarhafið, ekki spurning að ég mundi velja eins og hinir 345 úr Tyrkjaráninu...
Það er alveg frábær þessi sögufölsun sem var kennd í barnaskólum hérna alveg fram eftir öllu að víkingarnir hafi bara siglt hér inn og byggt upp bæi sína myndarlega, ritað íslendingasögur og svo bara riðið um héruð glæsilegir á velli með sverð íklæddir hringabrynjum alveg þangað til þeir keyptu sér Landkrúser. Það gleymist alveg sá tími þegar aumingja og vesældómurinn hér voru í botni og Danakóngur bauð Hollendingum og Bretum Ísland uppí skuld en þeir afþökkuðu og gáfu skuldina frekar eftir en eignast okkur...

Hvað á að gera núna eftir stækkun Evrópusambandsins og allir pólverjarnir, tékkarnir, og eystrasaltslendingarnir fara aftur heim til sín eða fara að vinna einhversstaðar annarsstaðar í Evrópusambandinu ?!? Hvernig á að vinna fisk á Íslandi eftir það ?!? Gaman að vita hvort þessi krummaskuð úti um allt land sem er haldið lifandi í öndunarvélum standist ekki samanburð við vinnumarkað Evrópusambandsins...

Ég var annars að keyra taxa og rútu um helgina í samtals 38 klukkutíma og svaf bara alveg prýðilega allann sunnudaginn.... Á laugardagsnóttina fékk ég algjört megabeib í bílinn sem mig langaði að skoða betur, en því miður var vinkona hennar með......

fimmtudagur, mars 04, 2004

Bóndinn Gamli á Laxamýri skrifar í Moggann í dag og vill forðast illdeilur og segir að starfsmenn Landsvirkjunar séu alltaf kurteisir og komi vel fram.. Hann segir líka að honum finnist virkjunarmannvirkin í Laxárgljúfri falleg og að það sé skylda okkar Íslendinga að lifa af kostum landsins auk þess sem það sé svo indælt að búa við örugga raforku...
Þessi maður sem er eflaust fullorðinn bóndi með hjarta úr gulli hefur ekki tekið eftir því að það er búið að reisa nokkrar virkjanir á landinu síðan Laxárvirkjun var byggð og má þar nefna Búrfell, Sigöldu, Hrauneyjafoss, Vatnsfell, Sultartanga, Nesjavellavirkjun,Kröflu og nú er verið að slá upp einni við Kárahnjúka einnig eru raflínur til út um allt land og þær er meira að segja hægt að grafa í jörðu nútildax.....Ekki má alltaf treysta því sem menn segja bara ef þeir eru kurteisir..

Mér finnst bara að þegar er verið að taka einhverjar ákvarðanir með framkvæmdir sem raska miklu og eru ekki afturkræfar að náttúrans eigi að fá að njóta vafans ríkulega og er ég þá kominn í bullandi þversögn við sjálfan mig en rjúpur eru sko hættuleg illfygli sem hafa oft ráðist á börn og má drepa þær í sjálfsvörn..

Áhugasömum er einnig bent á að mig langar ofsalega mikið í riffil af hlaupvídd 243 eða 30 06 til þess að fara með austur á land síðsumars og fíla grasið þar sem það grær.

miðvikudagur, mars 03, 2004

Mikið er nú gaman að vera kominn með svona fallegan tómatateljara þarna niðri og barasta alveg fullt af hellíngs liði sem skoðar !! gaman gaman......

En eigum við að lýsa upp hann Gullfoss ??? Það er spurning... Sumir segja að þá sé hann ekki lengur náttúrufyrirbæri heldur mannvirki og að túristar séu hingað komnir til að sjá óspillta náttúru. Mér finnst reyndar að bekkirnir sem búið er að planta við neðra bílastæðið við Gullfoss hefðu átt að fara í umhverfismat, svo arfaljótir asnalegir og út úr kú sem þeir eru......
Ég er hinsvegar fylgjandi því að lýsa fossinn upp en engin merki mega sjást um ljóskastarana sem notaðir verða til þess atarna og auðvelt á að verða að fjarlæga þá aftur..
Það verður þá önnur gerð túrista sem skoðar Gullfoss upplýstan en þeir sem skoða hann á sumrum. Já nota bene ekki er hægt að lýsa hann upp þá, svo langflestir túristar eru tilneyddir að njóta Gullfosss í sínu náttúrulega orginal skrúði hvort eð er. Þetta ætti ekkert að skaða neinn, hvorki fossinn né fólkið sem rekur kaffihúsið við hann (þar fæst reyndar alveg prýðilegt cappuccino).....

En væri ekki ráð að borga bændum beingreiðslur til að framleiða ekki neitt eða bara eitthvað mjög lítið ?? En þeir geta samt slegið tún áfram og hirt í rúllur en sleppt því að plasta og keyrt öllusaman uppá Kjöl eða Sprengisand... Í staðinn fyrir 300 hlöður bara 5-6 almennilega stóra vörubíla til að keyra þessu uppeftir og allir verða himinlifandi... Ég er nebblega alls ekki á móti bændum og finnst þeir hið besta fólk en ég veit það líka að sauðfjárbændur lepja dauðann úr skel þó að þeir séu með 500 rollur... Eitt dæmi til samanburðar er bóndinn sem ég hitti stundum á túrnum mínum þegar ég vann hjá DHL í landbúnaðarhéruðum Þýskalands hann átti 5 hænur, 2 beljur, 5 rollur, rosalega flottan Benz traktor nýjan E-Benz og 300 fermetra íbúðarhús. Svona illa færi fyrir bændunum okkar ef við færum í Evrópubandalagið..
En hvernig færi þá með sjávarútveginn ???!!!!??? Sjávarútvegurinn er allur í einkaeign eða sko allir eiga hann en bara sumir mega nota !! Svo það er ekkert hægt að hrófla við honum hvort eð er nema bara ef menn vilja vera snillingar eins og Akureyringar og Skagamenn og selja allt klabbið en verða svo hissa ef mennirnir sem keyptu gera það sem þeim sýnist við sína nýju eign (Sameign þjóðarinnar)...
Ég var í 10 daga ferð með honum þessum í sumar og sagði hann mér margt skemmtilegt og gagnlegt um þessi mál öllsömul fyrir utan það að við keyrðum um landið þvert og endilangt og fannst báðum leiðinlegt á Sprengisandi......

þriðjudagur, mars 02, 2004

Í samtali við vin minn um daginn fórum við að tala um hvernig fílingur það er að sitja í góðu veðri í bjórgarði með kaldan öl í hönd og spökulera í fólkinu í kring.... Komumst við að því að þetta eru lífsgæði sannkölluð lífsgæði, og það er hreint ótrúlegt að Íslendingar sem eru alltaf í útlöndum og sólarlandaferðum skuli ekki vilja svona lífsgæði hér, heldur alltaf fara til útlanda til að hafa það gott og skemmtilegt......Hátt bjórverð og vöruverð yfirleitt eru engin náttúrulögmál heldur bara framsóknarmennska af versta tagi eða bara einhver tregða að meðtaka það að lífið á Íslandi getur líka verið næs...

Hann Jón Helgason fyrrverandi framsóknarmálaráðherra var templari og bannaði þessvegna vestrænni þjóð að drekka bjór á níunda áratug 20. aldar !?!?! Sami ráðherra vildi ekki leyfa frönskum vini mínum að selja rauðvín á frönskum veitingastað, við það lentu Reykjavík og Teheran í sama flokki sem einu borgirnar í heiminum sem ekki var hægt að fá vín á frönskum veitingastað......Jón Helgason sagði frakkanum við þetta tilefni "Láttu fólkið bara drekka appelsínusafa hann er mjög góður og hollur" og frakkinn hélt að ráðherra væri að grínast, sem hann var ekki.....
Nú er öldin önnur og sett eru lög sem skylda menn til að nota land og handbeitta línu við fiskveiðar og landbúbúráðherrann vill að hinar íslensku fjölskyldur mjólki hina íslensku mjólkurkú og eti dabei íslenskt rolluket af afrétti sem er orðin sandfoka eyðimörk sökum framsóknarmennsku fyrri kynslóða....
Siv friðaði rjúpuna örugglega bara til að virkjanirnar vinir hennar við Þjórsá fengju nú frið og ekki væru rjúpnaskyttur að trufla starfsmenn Landsvirkjunar sem eru hennar allra bestu vinir... ÞAÐ ERU KOMNAR RJÚPUR Í ÁRBÆINN !!!!! svo ekki eru þær alveg útdauðar enn heldur bara komnar útum allt......
Ég held bara svei mér að Siv og Frikki Soph séu ekki bara góðir vinir......