sunnudagur, apríl 11, 2004

Gleðilegan páska gott fólk þetta er alltsaman í fínu standi og ég fékk alveg prýðilegt páskaegg með ofsa deep málshætti sem ég man ekki nógu vel núna...

Benzinn minn mikli og fagri stóð sig alveg stórkostlega í Gullfoss og Geysisrúnti á föstudaginn langa og leiðinlega sem var svo enn leiðinlegri þegar bensínsjoppan sem ég ætlaði að skila inn 5 brosköllum í og fá fría kók var lokað á trýnið á mér....

Ég vil benda öllum þeim sem ekki hafa lesið bakþanka Andra Snæs Magnasonar aftan á Fréttablaðinu núna á laugardaginn milli páska á að lesa þá hið snarpasta. Sérstaklega er skemmtilegt hvernig hann minnist á boðorðin 10 og hvernig þau eru haldin af öfgatrúarfólki.....

Ég nenni ekki að fara og sjá Gibbsonjesúmyndina vegna þess að ég veit að mér mun líða illa á henni og eins finnst mér að fólk ætti alvarlega að fara að íhuga hvað allt þetta endemis trúarröfl er að gera í heiminum í dag og næstu ár. Jú boðskapurinn er góður og fallegur um að allir eigi að elska náungann en mér finnst asskoti margir vera tilbúnir að drepa náungann til þess að sýna honum að SVONA sé bara hægt að vera góður maður.....
Kæri Mel nú ertu búinn að moka inn skrilljón trilljónum á kvölum frelsarans, núna skaltu mennta og brauðfæða svona 500 000 fátæk börn fyrir peninginn eða talinn eymingi ella....

Hafiði það sem allra best þar til næst kæru vinir og lesendur.... Psi

Engin ummæli: