föstudagur, desember 29, 2006

Garðyrkja og bjór

Fínt í Þýskalandi maður, fínn bjór og fullt að gera útí garði. Búinn að hafa það alveg ljómandi og éta og drekka sem mest ég má, eins og vera ber á jólunum.
Búinn að fá mér nýjann Nikon í staðinn fyrir þann sem ég týndi og allt.
Mér finnst vera skortur á samskiptaleysi í þessum heimi.

laugardagur, desember 23, 2006

Mannskaði í frændgarði.

Í þessum desember hefur orðið mikill mannskaði í frændgarðinum mínum og langar mig að nefna nöfnin þeirra hér.
Tveir ungir menn í blóma lífsins og báðir þremenningar við mig dóu nú í desember, þeir Torfi Freyr Alexandersson og Ásgeir Jón Einarsson, frændur mínir létust báðir langt um aldur fram, og svo hún Elsa frænka, Elísabet Óskarsdóttir systir og vinkona hennar mömmu.
Blessuð sé minning ykkar.

þriðjudagur, desember 19, 2006

Leiðsögumannajarm....

Sá ágæti drengur Stefán Helgi Valsson sem er mikill orkubolti og penni á heimasíðu sumra leiðsögumanna á Íslandi grætur og gnístir tönnum í útvarpinu í morgun, að sumar útlendar ferðaskrifstofur hafi með sér fararstjóra til Íslands.
Hvað gera íslenskar ferðaskrifstofur sem senda íslenska ferðamenn til útlanda í hópferðir? Jú þær senda íslenskann fararstjóra með ef þetta á að vera almennilegt. Margir íslenskir gædar taka einmitt svona djobb í útlöndum, og gráta svo ef útlendingur kemur með hóp hingað, þannig að tvískinnungurinn er augljós.
Leiðsögumaður á hinsvegar að vera eitthvað annað og hefur fólk alveg val um að fá sér svoleiðis eða ekki. Hérna á Íslandi hafa þessi 2 djobb hinsvegar skarast mjög mikið og er leiðsögumaðurinn jafnan fararstjóri líka, jafnvel þó svoleiðis nokk sé með í för, vegna þess að við íslendingar reddum öllu...
Ég er hinsvegar algerlega á móti öllu jarminu og aumingjaganginum sem virðist vera allt sem þetta félag hefir uppá að bjóða. Ég borgaði óvart fullt af félagsgjöldum þarna í sumar og geri ég það vonandi aldrei aftur, því verri er vondur félagsskapur en enginn.

Verslum beint við bændur.

Á árum áður er ég hafði það að atvinnu að rúnta um ein sællegustu landbúnaðarhéruð Evrópu í Bæjaralandi, sá ég oft og á mörgum stöðum að bændur voru að selja beint útaf búum sínum kjöt, pylsur, egg, mjólk, osta og sultur og örugglega eitthvað fleira.
Þetta hefir aldrei mátt á Íslandi heldur hefur framsóknarmennskan, kaupfélögin, mjólkursamsalan og öll þessi bákn sem reist hafa verið um íslenskan landbúnað, stefnt markvisst að því að gera bændur að ósjálfbjarga aumingjum, sem fá allra náðarsamlegast að lepja dauðann úr skel. Það sorglegasta er að margir þessir bændur trúa því virkilega, að þessi kjör sem þeir kjósa yfir sig aftur og aftur, séu einhver náttúrulögmál.
Það er bara nýtilkomin einhver tillaga að bændur megi gera þetta á Íslandi og ekki hef ég séð mikið rætt um hana enn, en einhvernveginn minnir mig að það verði að neyta vörunnar á staðnum, sem er út í hött.
Íslenskir bændur eru harðduglegt og úrræðagott fólk og ég vill trúa því að þó samkeppni við þá verði leyfð að einhverju marki, þá lifi þeir af bara vegna sérstöðu sinnar og þeirrar vissu sem íslendingar hafa fyrir því að þeir framleiði góða vöru.
Svo ég minnist aftur á bæjarana, þá er landbúnaður þeirra niðurgreiddur af Evrópusambandinu eins og við greiðum niður okkar landbúnað, en þarna eru mörg skilyrði til landbúnaðar miklum mun hagstæðari. Tökum sem dæmi bóndann sem ég sá plægja akurinn sinn á 40 km hraða á nýja Benz traktornum sínum, vegna þess að hann vissi að síðastliðin 400 ár hafði enginn forveri hans rekist á klöpp eða grjót í akrinum.
Afurðir þessara bænda eru reyndar alveg frábærar en hinsvegar ekki íslenskar og það vita íslendingar mætavel, það er ekki ráðið að halda okkur frá frjálsu vali með ofurtollum og okri.
Látum evrópubúa frekar gefa okkur að éta með sínum niðurgreiðslum, annað eins skuldar evrópusambandið okkur nú eftir að eitt aðildarríkjanna undirokaði og kúgaði íslendinga árhundruðum saman.

Björn Ingi, sigurvegari kosninga?

Björn Ingi Hrafnsson veður í villu og svíma ef hann telur sig hafa unnið einhvejar kosningar. Vissulega er hann í borgarstjórn sem taglhnýtingur Sjálfstæðisflokksins, en sigurvegarar í kosningum eru hann og Framsóknarflokkurinn ekki.
Hann deilir hart á Dag B. Eggertsson og segir hann hafa keypt sér kennarastöðu í HR með því að láta þann skóla hafa stærstu lóð í sögu Reykjavíkur. Gleymir hann þarna mjög að þá var R-listinn við völd í Reykjavík með þáttöku Framsóknarflokksins sem Björn Ingi er búinn að gleyma að hann er í, en ekki Sjálfstæðisflokknum.
Engin furða er reyndar að hann gleymi því að hann er Framsóknarmaður þar sem hann hefir nú fundið sér skjól og bitlinga, kyrfilega kýldur í görnina á Íhaldinu og sér þar ekkert til beggja hliða né fram eða aftur, nema sauruga þarmaveggi þess vonda staðar.

fimmtudagur, desember 14, 2006

Jól í útlöndum

Ég er í þessu feikna helvítis bloggstuði núna eftir alla pásuna sem varði í nærri 2 ár og þetta er allt orðið svo notendavænt og fínt.
Ég ætla sumsé að fara til meginlands Evrópu að fíla jólin með Miss Hilfiger und Hansson, munum við gera okkar besta til að berjast á þessum stóra vígvelli við böl áfengisdrykkju og kannabisreykinga, ásamt því að mæta reglulega í kirkju til að fíla þetta nú sem best.

Rasistar?

Er hægt að vera rasisti innan eigin rassa eða rasss?
Rasisti er bein hljóðræn þýðing á "Racist" sem þýðir kynþáttahatari á ensku. Datt í hug hljóðræn þar sem ég hef aldrei heyrt talað um ras eða rasa þegar átt er við kynþætti mannkyns á íslensku.

Ef einhver íslendingur hatar pólverja getur hann eiginlega ekki verið kynþáttahatari, þar sem þeir eru af sama kynþætti. Svipað og dani sem hatar svía getur varla talist kynþáttahatari.
Þessi andúð á pólverjum er skiljanleg að sumu leyti meðal fólks sem vinnur láglaunastörf, þar sem samningsstaða þeirra versnar mjög ef það bíður fólk í röðum til að vinna vinnuna þeirra fyrir lægri laun en þeirra.
Mér finnast reyndar yfirmenn sem níða niður íslenskt vinnuafl og segja að aðrir vinni betur og séu duglegri en íslendingar, skjóta sig hressilega í fótinn, ættu þeir þá ekki theoretískt að víkja sjálfir fyrir útlendingi sem er betri en þeir?
Rasismi finnst mér ekki ganga sem lýsing á ástandi innan sama kynþáttar.
Ástandið getur verið vont en það er ekki rasismi heldur bara vesen, sem er hægt að leysa með góðum vilja fólks.
Verkalýðshreyfingin sem er reyndar orðin svo tannlaus og hrum, á að segja stopp og heimta án allra undanbragða sömu kjör fyrir útlendingana og hina íslensku félaga sína.
Persónulega finnst mér hún Aurelija útlenska sæta stelpa á KFC í Keflavík vera til mikillar fyrirmyndar og alltaf með bros á vör.

Spökulasjónir.

Hvernig getur staðið á því að meirihluti íslendinga er fylgjandi hvalveiðum?
Þetta er alveg með ólíkindum, hvað skaffa Stjáni Lofts og Hvalur mörg heilssársstörf við að drepa 70 ára gamlar langreyðarkýr, sem ekki eru hæfar til manneldis vegna eitrunar?
Vilja hundaeigendur fóðra hundana sína á fóðri unnu úr þessu mengaða kjöti?
Er Einar Kr. Guðfinnson að gefa út kosningavíxil með þessu sem við borgum seinna?
Er Guðni Ágústsson sáttur, eftir að vera búinn að markaðssetja íslenska lambaketið í ameríku með ærnum tilkostnaði okkar íslendinga sem borgum skatta (allavega oftast nær)?
Vantar japani hvalkjöt?
Vantar íslendinga hvalkjöt?
Hvern vantar hvalkjöt?
Hvern langar í 70 ára gamla langreyðarbelju í matinn?

Mig langar aðeins að benda á svolítið sem ég hef upplifað í vinnu minni sem leiðsögumaður ferðamanna um landið okkar.
Ég fór með túristana mína í hvalaskoðun frá Húsavík nokkrum sinnum síðastliðið sumar, og þar voru hnúfubakar við stökkæfingar.
Enginn af mínum ferðamönnum hafði nokkru sinni, upplifað neitt stórkostlegra náttúruphenomen á ævinni.
Þetta er það sem þarf að benda á!

Íslendingar hafa fæstir séð þetta, og vita þar af leiðandi ekki rassgat um hvað er verið að tala.
Í þeim 5-6 hvalaskoðunarferðum sem ég fór í fyrrasumar sá ég eina íslenska fjölskyldu, sú fjölskylda gekk frá borði með stjörnur í augum og bros á vör ásamt von um friðun hvala við Íslandsstrendur í brjósti.
Mín mesta upplifun í þessu sl. sumar var að berja Steypireyð augum skammt frá Flatey á Skjálfanda, hvílík ógnarskepna er þar á ferð, ekki er fyrir neinn sem ekki hefir séð, að ímynda sér mikilfengleika þessa dýrs í návígi.
Fílstarfur er 5-6,5 tonn, en Steypireyður er 100-150 tonn. Engin smá skepna!

Fyrst ég er nú að nefna íslendinga á ferð um landið, þá eru þeir skammarlega fáir.
Ísland er fallegasta og besta land í heimi til að ferðast um á sumrin!
Farið annað á öðrum tímum.
Bless á meðan.

Mættur aftur!

Vegna þúsunda áskorana úr öllum heimsins hornum hef ég ákveðið að skrifa soldið meira hérna, ég mun leitast við að rita sem besta íslensku, en áskil mér rétt til þess að gera eins og mér sýnist.