Sá ágæti drengur Stefán Helgi Valsson sem er mikill orkubolti og penni á heimasíðu sumra leiðsögumanna á Íslandi grætur og gnístir tönnum í útvarpinu í morgun, að sumar útlendar ferðaskrifstofur hafi með sér fararstjóra til Íslands.
Hvað gera íslenskar ferðaskrifstofur sem senda íslenska ferðamenn til útlanda í hópferðir? Jú þær senda íslenskann fararstjóra með ef þetta á að vera almennilegt. Margir íslenskir gædar taka einmitt svona djobb í útlöndum, og gráta svo ef útlendingur kemur með hóp hingað, þannig að tvískinnungurinn er augljós.
Leiðsögumaður á hinsvegar að vera eitthvað annað og hefur fólk alveg val um að fá sér svoleiðis eða ekki. Hérna á Íslandi hafa þessi 2 djobb hinsvegar skarast mjög mikið og er leiðsögumaðurinn jafnan fararstjóri líka, jafnvel þó svoleiðis nokk sé með í för, vegna þess að við íslendingar reddum öllu...
Ég er hinsvegar algerlega á móti öllu jarminu og aumingjaganginum sem virðist vera allt sem þetta félag hefir uppá að bjóða. Ég borgaði óvart fullt af félagsgjöldum þarna í sumar og geri ég það vonandi aldrei aftur, því verri er vondur félagsskapur en enginn.
þriðjudagur, desember 19, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Sæll Pétur og þakka þér fyrir hrósið.
Þú bendir réttilega á að íslenskir leiðsögumenn gegna tveimur störfum í ferðum hér á landi, þ.e.a.s. leiðsögn og fararstjórn.
Það er með ólíkindum hversu margir rugla þessum tveimur störfum saman en þú þekkir það þar sem þú starfar annaðhvort við leiðsögn eða fararstjórn eða hvoru tveggja eins og þú bendir réttilega á að er vænst hér á landi. Í mínum huga eru þessi störf eins ólík og starf málara annars vegar og starf pípulagningamanns hins vegar, þótt báðir séu iðnaðarmenn.
Hvað varðar fullyrðingu þína um að íslenskir fararstjórar (ekki leiðsögumenn) starfi sem slíkir erlendis er það rétt. Hins vegar mega fararstjórar ekki leiðsegja í þeim löndum þar sem yfirvöld skilja mikilvægi leiðsögumannsins í upplifun ferðamanna og þeim atriðum sem lúta að neytendavernd. Þetta skilja m.a. stjórnvöld á Ítalíu, Grikklandi, Tyrklandi og í Suður-Afríku.
Það er rétt að Félag leiðsögumanna hefur átt undir högg að sækja um nokkurt skeið gagnvart stjórnvöldum og viðsemjendum í kjaraviðræðum. Laun leiðsögumanna hafa dregist aftur úr öðrum fagmenntuðum stéttum.
Tilvist félagsins staðfestir þó það að leiðsögumenn eru fagstétt en eitt helsta hlutverk þess er að semja um lágmarkslaun fyrir hönd allra leiðsögumanna (líka erlendra) sem starfa á Íslandi.
Félag leiðsögumanna er fyrst og fremst fagfélag og hagsmunafélag fólks sem hefur tekjur af leiðsögn á Íslandi eða fararstjórn erlendis. Án félagsins hefðu þessar starfsstéttir engan málsvara gagnvart viðsemjendum eða á opinberum vetvangi.
Því miður eru leiðsögumenn marglit hjörð að því leyti að hagsmunir þeirra eru ólíkir og fæstir hafa leiðsögn að aðalatvinnu. Afleiðing þess er sú að mjög erfitt er að samræma hagsmuni allra. Þeir sem reyna að hafa leiðsögn að lífsviðurværi eiga annarra hagsmuna að gæta en þeir sem leiðsegja ferðamönnum í nokkra daga á ári, í sumarfríinu sínu, eða vegna þess að þeir eru hættir að vinna og þykir gaman að því að ferðast um landið og æfa sig í erlendu tungumáli.
Mér væri sönn ánægja að ræða þetta málefni við þig frekar ef þú hefur áhuga á því. Síminn hjá mér er 561 2790 eða 897 2790. Stefán Helgi Valsson
Skrifa ummæli