Aldrei líður langur tími milli þess sem hægt er að rífast um virkjanamál og núna ætla ég að andskotast útí fyrirhugaðar virkjanir í neðri hluta Þjórsár.
Þjórsáin er fögur og fríð og er einnig lengsta á á Íslandi 230 km. löng að mig minnir frá Þjórsárverum við Hofsjökul og niður í fjöru í Flóanum. Þjórsáin er bara alveg búin að leggja sitt á vogarskálarnar í gegnum tíðina og er efri hluti hennar og vatnasvæði ansi mikið virkjaður orðinn nú þegar og ætli Þjórsá fari ekki langt með að skaffa helminginn af allri raforku sem er framleidd á landinu í dag, þessar virkjanir eru nú þegar í Þjórsá, Vatnsfellsvirkjun, Sigölduvirkjun, Hrauneyjafossvirkjun, Sultartangavirkjun og Búrfellsvirkjun.
Ég held að við eigum bara að sleppa þessu og leyfa Þjórsánni að eiga sig niðri í byggð og hlífa algerlega hinum stórkostlega Urriðafossi sem sést aðeins grilla í frá nýju Þjórsárbrúnni og legg ég til við fólk að fara niður að honum og finna og heyra kraftinn í þessu stórkostlega vatnsfalli sem er reyndar ekki foss í eiginlegum skilningi, frekar svona svakalegar flúðir. Ef allt bregst og illgjarnir menn og gírugir hafa betur og virkja þarna allt í steik, þá treysti ég á hann Kampholtsmóra vin minn sem þarna hefst við í nágrenninu að láta til sín taka með misfallegum úrræðum....
miðvikudagur, desember 05, 2007
sunnudagur, desember 02, 2007
Istar eru asnar
Gaman að fylgjast með istum þessa heims gera sig að fíflum útumallt, feministum, rasistum, kommúnistum, kapitalistum, hurðalistum, fúndamentalistum og örugglega fleiri.
Eina ráðið er greinilega að skjóta alla öfgamenn!

laugardagur, desember 01, 2007
Langt síðan síðast
Jæja kominn tími á að blogga örlítið þar sem mér líður bara orðið helvíti ágætlega eftir hremmingar þessa hausts sem er örugglega það leiðinlegasta sem ég hef lifað, ber það að þakka góðu fólki innan fjölskyldu og utan og einni alveg sérstaklega sætri konu í vesturbænum.
Eins og flestir vita sem mig þekkja þá fórst Pabbi í bílslysi þann 11. september á Suðurlandsvegi milli Hveragerðis og Selfoss. Ég var að hugsa um að blogga eitthvað um Pabba en það stendur mér eitthvað svo nærri að ég held ég sleppi því enn um sinn.
Ég er oft búinn að tjá mig um að vegakerfið hér er ónýtt og hefur skoðun mín á því ekki breyst eftir þetta slys eða önnur sem hafa á eftir fylgt.
Hann pabbi var öndvegiskall og brölluðum við heilmikið saman, þá sérstaklega úti í Grímsey og það var einmitt Pabbi sem kallaði mig Petrossian eftir einhverjum skákmeistara að mig minnir, en það er nú önnur saga.
Nú eru flutningar upp á efri hæð á Ásveginum í gangi og er það bara gaman þó fyrri kynslóðir skilji eftir sig mikil reiðinnar býsn af dóti sem ég á erfitt með að henda reiður á og henda í ruslið.
Best að drullast til að fara og gera eitthvað og hætta þessu kæruleysi...Góðar stundir.

sunnudagur, ágúst 26, 2007
Rútuslys
Í tilefni þessa rútuslyss á Fljótsdalnum datt mér einmitt í hug að í eitthvað af þeim skiptum sem ég hef keyrt upp brekkuna atarna hugleiddi ég hvursu ferlegt væri örugglega að verða bremsulaus á leiðinni niður. Vel að merkja hef ég aldrei keyrt niður þessa brekku, bara upp.
Akstur stórra bíla lýtur allt öðrum lögmálum en akstur minni bíla og er leitt að lesa og heyra marga "sérfræðinga" tjá sig um málið sem ekki hafa hundsvit þar á.
Þessi umrædda rúta sýnist mér vera gamall "Júkki" smíðaður eftir teikningu Guðmundar Laugdal byggður á Benz grind en yfirbyggður í Júgóslavíu heitinni, þessi bíll er örugglega búinn 2ja punkta öryggisbeltum í öllum sætum, annars förlast mér illa. Það er bara enginn hægðarleikur fyrir bílstjóragreyin að fylgjast með og fylgja beltanotkun eftir því þegar þeim er aldrei hlýtt þá gefast þeir bara upp, þó svo að ekki séu alltaf sömu farþegarnir innanborðs.
Líka gaman að sjá að fólk álíti rútuakstur vera ábyrgðarstarf, eða allavega þar til greiða á rútubílstjórum laun....

fimmtudagur, ágúst 16, 2007
Stæðsti maðurinn leitar af hundi..
Það er ömurlegt að lesa sumt sem er birt á netinu. Stafsetning er mitt hjartans mál..
miðvikudagur, ágúst 15, 2007
Ruslvegir
Ég kláraði eina hringferð um landið okkar allra í dag og fékk alveg yfir mig nóg af andskotans ónýta vegaruslinu sem tug ef ekki hundruðum þúsunda ferðamanna er boðið uppá. Nokkur dæmi fara hér á eftir.
Hólssandur frá Ásbyrgi að Dettifossi og niður á Hringveginn við Grímsstaði á Fjöllum, þetta vegarhelvíti sem hefur verið okkur íslendingum til háborinnar skammar í nokkra áratugi er svo handónýtt að fyrir löngu ætti að vera búið að banna alla umferð þarna um nema kannski dráttarvéla, ég kom einmitt að einni bílveltu þarna í þessari ferð og var það ekki sú fyrsta og klárlega ekki sú síðasta á þessu sumri..
Vegurinn út í Dyrhólaey, að aka um þennan 6 km. stubb er eins og renna sér niður Kóngsgilið í Bláfjöllum á magasleða um hásumar, þessi andskotans stubbur er hræðilegur yfirferðar vægast sagt og gæti ég helst ímyndað mér að svona líti vegagerð út hjá andskotanum sjálfum.
Gjábakkavegur, sem liggur frá elsta þjóðgarði okkar til mest heimsóttu náttúrugersema okkar Gullfosss og Geysis er hryllilegur og ekki nokkrum manni bjóðandi, þvottabretti og djúpar holur út um allt.
Það er komið árið 2007 og það koma um eða yfir 300.000 ferðamenn hingað á hverju ári, auk þess sem íslendingar rúnta sjálfir töluvert um. Það er ekki í lagi að bjóða upp á þennan hrylling, flottast af öllu þótti mér samt skiltið sem sýnir 80 km. hámarkshraða á veginum út í Dyrhólaey, hafi einhver náð þeim hraða og sloppið óskemmdur frá, bitte melden.

laugardagur, júlí 14, 2007
Össur minn
Mikið er nú gott að hann Össur minn er kominn í góða aðstöðu til að þenja sig, Rio Tinto eru skítalabbar og þeir mega vera úti, eins þetta með góðviðrisdagasumbl á götum úti eins og hjá öðrum siðuðum þjóðum. Össur vinnur...
laugardagur, júlí 07, 2007
ALCAN
Samfélagsstarf ALCAN, eithvað hefur borið minna á "reglulegum boðum" til Hafnfirðinga eftir að ALCAN tapaði íbúakosningunni. Hver sér ekki að þau voru að eyða skrilljónum í þessa baráttu? En töpuðu samt.....
miðvikudagur, júní 06, 2007
Rétti maðurinn
Ég er rétti maðurinn í starf landsliðsþjálfara í fótbolta, ég gæti ekki að minnsta kost verið verri en þessi sem er núna, síðustu 2 leiki er ég viss um að ég hefði reddað þessu eins vel og núverandi þjálfari landsliðsins.....
Maðurinn er fífl
Einn maður að nafni Jóhann Elíasson hefur tekið þann pól í hæðina til að afla stuðnings við víðáttuvitlausar hvalveiðar okkar íslendinga að agnúast út í hvalaskoðunarfyrirtæki og allan þann bransa.
Það vinna í dag fleiri við hvalaskoðun heldur en hafa nokkurn tímann unnið við hvalveiðar og verkun á Íslandi eftir seinni heimsstyrjöld.
Það er léleg rök fyrir hvalveiðum að segja að hvalaskoðun sé hæpinn bransi. Ég hvet þig Jóhann til að fara í hvalaskoðun með einu flottu fyrirtæki í þessum bransa td. Norðursiglingu á Húsavík, þar er rekið flott fyrirtæki og bátarnir þeirra, sem eru fallega uppgerðir eikarbátar segja líka vel sögu íslenskrar sjómennsku og handverks. Einnig ber að bæta við að langflestir erlendir ferðamenn sem hingað koma hafa á þessu skoðun og er hún ekki hvalveiðum í hag.
Hvalveiðar skipta íslenska þjóðarbúið engu máli, nema ef væri að fólk hætti við að koma hingað af þessum sökum. Ég er sjálfur veiðimaður og umgengst náttúruna af virðingu, og ég skil alveg menn sem vilja veiða. Að sama skapi myndi ég ekki stunda sela og andaskytterí í húsdýragarðinum, því það væri einfaldlega alveg fatal fyrir bissnesinn þar. Þannig er komið ef hvalveiðar eru stundaðar á Skjálfandaflóa til dæmis. Almenningsálitið í heiminum er svo mikið á móti þessu að sama hverju yrði til kostað við að reyna að bæta það þá er skaðinn skeður og betra og gáfulegra er að eyða peningum í annað..
Nenni ekki að þusa meira.

sunnudagur, júní 03, 2007
Grímsey
Fór útí Grímsey í skítakulda og roki og var stefnan tekin á bjargsig, ekkert var hægt að fara 2 fyrstu dagana en svo á síðasta degi birtist Siggi Bjarna með bros á vör og dró okkur á bjarg. Stelpurnar náðu að síga en ég ekki þar sem við vorum að missa af bátnum í land, stelpurnar voru algjörar hetjur og skemmtilegri ferðafélaga en þessar viðrextrarvélar er ekki hægt að hugsa sér. Ég grét af hlátri við að hlusta á Stínku syngja, ó sóle míó komdu í bíó, svo hefur komið í ljós að hún yndislega Þóra er með svaka túttur og því ber að fagna.
Fórum líka útá Fót að tína skegluegg og þar fékk ég panikattakk við klettapríl, en það reddaðist, ansi er maður samt ekki eins liðugur og í denn þegar ég prílaði þarna um allt eins og mf.
Vantaði bara siggengið mikla og eina bátsferð þá hefði þetta verið pörfekkt, bara næst.....

sunnudagur, maí 27, 2007
Tilvistarkreppa
Eftir að hafa verið í bullandi stjórnarandstöðu í 12 ár veit maður bara ekkert hvað maður á að gera núna....Kannski bara brosa :)
Setti met í einu vondu máli í gær og þarf að punga út hárri sekt til soltins Ríkissjóðs, ég meina djö!!! Afhverju er löggan komin með radartæki sem draga 1000 metra til að hrella sakleysingja eins og mig.

sunnudagur, maí 13, 2007
Ísland ögrum skorið
Það liggur nú ljóst fyrir að 64,2% íslendinga vilja Samfylkingu og Sjálfstæðisflokk í ríkisstjórn, gerum nú það eina rétta og fáum okkur svoleiðis stjórn, þá verður meirihluti þjóðarinnar glaður. Fokk jú VG.
laugardagur, apríl 28, 2007
Örlar á dröllu?
Ja hver skrambinn, allt farið á hvolf vegna þess að Helgi Seljan snillingur náði að gægjast inn í Framsóknarfjósið og sjá skít í flórnum. Hvað býst fólk við að sjá inni í níræðum fjósum? Nú er einmitt tækifæri til að loka þessu fjósi og henda innviðunum fjandans til, svo útmignir, skitnir, slitnir, sleipir og ofbrúkaðir þeir eru.
fimmtudagur, apríl 26, 2007
Reddum öllu á einu bretti
Hættum við að troða risaspítala niðri í bæ og flytjum hann á lóðina við Straumsvík sem er að losna fyrst Alcan vill ekki vera þar lengur með litlu sætu álbræðsluna sína. Tvöföldum Reykjanesbrautina alla leið með vegriðum og góðri lýsingu og hækkum hámarkshraða þar í að minnsta kosti 120 km. klst. Með þessu getum við líka lokað Reykjavíkurflugvelli og fært allt flugið á Keflavíkurflugvöll þar sem það á best heima og nóg pláss er fyrir alla. (nema reyndar þá sem ekki tóku þátt í samkeppnishamlandi útboði til 12 ára árið 2000 vegna þess að fyrirtækið var fyrst stofnað árið 2005)
Þetta er alveg snilldarhugmynd sem öllum finnst æði finnst mér.

Kommentin sem hverfa
Það hverfa öll komment sem hér koma inn í eitthvað hyldýpisgin sem ég nenni ekki að spá í núna, kannski seinna.
sunnudagur, apríl 08, 2007
Paulaner Original Münchner Hell
Mér vöknaði um augu er ég sá um daginn að loksins er hægt að drekka eðalbjór frá München á Íslandi án þess að bera hann með sér langar leiðir frá upprunaborginni. Nú bið ég bara um að haldið verði áfram á sömu góðu brautinni og Augustiner sem er nú enn langbestur allra, verði seldur í ríkisapparatinu líka. Ein prosit ein prosit der gemütlichkeit, oan zwoa drei gsuffa !!!!!
fimmtudagur, apríl 05, 2007
Kattakaffi til góðra verka
Það er ekki nokkur lifandi leið að ég muni nokkru sinni drekka kaffi útúr kattarrassi, einnig er mér spurn hvernig baununum er komið ónöguðum ofan í kettina.
Ég vill benda þeim ösnum sem láta gabba sig til að drekka ómelt kattaskítseyði að það er hægt að gefa peninga til styrktar hinum ýmsu málefnum beint, og án þess að gera sig að generalfífli.

þriðjudagur, mars 27, 2007
Íslands jökulár...
Eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár, sem tilbiður Alcan og deyr.
Tífalt húrra til handa Spaugstofumönnum sem hittu naglann svo rækilega á höfuðið, að mér vöknar um augu.

föstudagur, mars 23, 2007
Ojbarasta VG....
Þessi forræðishyggjuafturhaldsleiðindaflokkur sem er á hvað hröðustum flótta frá mér núna sem kjósanda náði góðri forystu í dag, eftir að ég hlustaði á hana Kolbrúnu H. í útvarpinu. Hún eyðir mestum tíma og þarafleiðandi peningum okkar skattborgaranna sem greiðum launin hennar í að fjasa eitthvað um útlenskar gleðikonur.
Til fjandans með útlenskar mellur! Þær eru ekki á vandamálalista okkar, frekar en vasaþjófnaður á frönskum flugvöllum.
Þessar konur eru frá einhverjum elstu menningarsamfélögum Evrópu, reyndar þeim svæðum þar sem kommúnistar og skoðunarbræður VG í forræðishyggju réðu hvað lengst málum.
En hvað eigum við með það að eyða okkar tæm and monní í að vesenast með þetta lið?
Mörg þessara landa eru komin í EB. og þangað vilja VG. ekki einu sinni gægjast snögglega, en um að gera að fara að væla um einhverjar ólánskonur utan úr heimi frekar en að líta á íslensk vandamál.
Ég er handviss um að Kolbrún H. hefur eitt mörgum sinnum meiri tíma og orku í að fjasa um útlenskar mellur heldur en td. um íslenska forræðislausa meðlagsgreiðandi feður sem eru að kikna undan byrðum sínum, en þeir borga þó launin hennar meðal annara.
Pólskar og tékkneskar mellur eru vandamál pólverja og tékka, ekki okkar hér.
Það er nóg að gera í réttlætismálum fyrir íslendinga sem kusu þessa þingmannahjörð yfir sig svo ekki séu sótt vandamál til Evrópusambandsins til að leysa. Einnig ber að geta þess að Steingrímur J. Sigfússon var á móti bjórnum og frjálsum útvarpsstöðvum, sem er náttúrlega alveg banal..
En að lokum, allir eiga að vera vinir og hjálpa þeim sem eru í nauðum staddir og nýta til þess kosti hins frjálsa hagkerfis. En byrja á að taka til heima hjá sér.
Djö..... hvað þetta var pólitískt...

þriðjudagur, febrúar 27, 2007
Fólk er ekki eins mikið fífl og ég hélt
Skemmtilegt að niðurstöðurnar úr skoðanakönnuninni sem Fréttablaðið gerði um ákvörðun Bændasamtakanna um að vísa starfsfólki í allsberum afþreygingariðnaði frá og skemmileggja þar með allt fyrir þeim svo þau hættu við íslandsför sem hefði örugglega skilið eftir 50 milljónir + í peningakössum íslenskra ferðaþjónustu og afþreygingarfyrirtækja.
Niðurstaðan var að meirihluta fólks fannst þetta vera tóm vitleysa.
Í aðdragandanum buldi hæst í nokkrum tómum tunnum, þeim Villa Þ, Ingu S. og Grímsa J.S. Það er annars skemmtilegt að fylgjast með hvað allir stjórnmálamenn landsins eru á hröðum flótta frá mér sem kjósanda, ég þoli engan þeirra núna.
Stulli Bö kom með útópíska samgönguáætlun klukkan hálfkosningar sem ekkert mark er takandi á, mér finnst reyndar bara gaman að hlusta á Stulla halda ræður á ensku, það er krydd í þeim ræðum.

föstudagur, febrúar 23, 2007
Klámráðstefnan mikla
Nú hafa þau loksins gefist upp á röflinu í nöldurliðinu, fólkið sem ætlaði að koma hingað til fagra Íslands og skemmta sér hressilega eina helgi eða svo. Skemmtilegt væri að vita úr hvaða sjóðum Ríkisins þeir sækja sér svo skaðabæturnar fyrir þessu kallarnir í Bændasamtökunum, mér reiknast lauslega til að þetta séu 15-20 milljónir tapaðar. Ferðaþjónustan á Íslandi hefur það nú nógu helvíti gott á veturna, þó einhverjir öskurapar vilji eyðileggja allt það markaðsstarf sem þar er unnið.
En svona að lokum leyfi ég mér að fullyrða að Hótel Saga er með stærri seljendum kláms á Íslandi í formi pay-tv, þarna ríður tvískinnungurinn ekki á eintrjáning eins og maðurinn sagði, en heldur finnst mér þetta djúpt í rassinn gripið.

föstudagur, febrúar 16, 2007
Stríð við Kópavog!
Eftir atburði síðustu daga þar sem Kópavogsarar hafa vaðið með skítugar skurðgröfur inn í einn helgasta unaðsreit Reykjavíkur, Heiðmörk, og eyðilagt þar helling í óleyfi, legg ég til að Kópavogi verði sagt stríð á hendur. Skrúfum fyrir vatnið og rafmagnið og setjum upp vegartálma við bæjarmörkin, engum Kópavogsbúa verður hleypt inn til Reykjavíkur. Vegatálmarnir standi þar til Gunnar er búinn að biðjast afsökunar og laga til eftir sig. Einnig mætti heimta skaðabætur ógurlegar í formi t.d. landareigna.
þriðjudagur, febrúar 13, 2007
Veg yfir Kjöl jú víst!
Ég er mikill unnandi náttúrunnar en skil samt ekki afhverju ekki má gera almennilegan veg yfir Kjöl? Kjölur er allt sumarið fólksbílafær og þar eru allar sprænur orðið brúaðar þannig að hver sem er getur farið þetta. Vegurinn er hinsvegar oft svo vondur þá sérstaklega hér að sunnanverðunni að fólk hættir ekki á að eyðileggja bílana sína. Ef bara er hægt að fara þessa leið á stórum bensínhákum, þá er það ekki umhverfisvernd. Útlendingar fara þessa leið á litlum bílaleigubílum og skemma þá, það er ekki umhverfisvænt. Fólk á að hafa aðgang þarna að til að njóta víðáttunnar og þannig eignumst við fleira fólk sem sannarlega kann að meta hálendið, sem reyndar er uppblásið og bert eftir ógurlega meðferð mannanna. Með betri vegi er aðgengið að stöðunum betra þangað kemur fleira fólk sem getur látið gott af sér leiða. Góður vegur yfir Kjöl skemmir ekki neitt.
Ég kom að bílslysi á Kili síðastliðið sumar og reyndist það þrautin þyngri að ná í hjálp, eftir langan tíma komu björgunarsveitarmenn með Iridium síma þar sem hægt var að ná sambandi við 112 og kom TF-LÍF eftir ca. klukkutíma eftir að sambandi var náð. Ekki er á Kili GSM eða NMT samband núna og þessvegna er það ábyrgðarhluti að hafa veginn svona vondan, þar sem það býður uppá slys. Góður vegur um Kjöl og gott símasamband er gott mál, og annað er umhverfisfasismi.

mánudagur, febrúar 12, 2007
Blórabögglar og sökudólgar
Mikið er leitað að slíkum nú.
Hverjum er Breiðavíkur ógæfan að kenna? Jú við skulum benda á ríkið og einhverja löngu dauða kalla, ef ekki á líkama þá á sál.
Við skulum ekki gleyma að áður en þessir aumingja drengir, sem ég vorkenni sárt að hafa þurft að þola þessa vítisvist, komu til Breiðavíkur voru margir búnir að bregðast sínu hlutverki illilega og hafði Ríkið ekki neina forgöngu þar um. Fyrstir allra til að bregðast sínu hlutverki voru foreldrar og ættingjar strákanna, sem eflaust hafa verið í mörgum tilfellum aumingjar af einhverju óskilgreindu tagi.
Það fólk er nú farið að rífa sig. Ekki skilja þetta sem einhverja andstöðu við að þessum strákum verði hjálpað núna eða þeir studdir á allan hátt, en líttu þér nær.
Hitt málið er Byrgið, þar er einn dónakall búinn að setja allt á annan endann og það er ekki neinum að kenna nema honum sjálfum, Jesús Jósefsson var að minnsta kosti ekki meðreiðarsveinn hans þarna.
Aftur er bent á Ríkið og ráðherrana, afhverju sagði enginn neitt fyrr en núna? Jú, dópistarnir voru úr augsýn og þá er allt gott.
Það er með hreinum ólíkindum hvað eru margir sérfræðingar um dópistameðferðarmál sprottnir upp nú nýlega, og hafa lengi vitað að þarna væri maðkur í mysunni.Aftur benda aðstandendur og dópistar á einhvern annan en sjálfan sig.
Líttu þér nær.

þriðjudagur, febrúar 06, 2007
Kröfugerðin mikla frá Kasmír
Ég réði lögfræðing til að gera kröfugerð í líkamsárásarmálinu mikla í dag, þetta verður að vanda vel vegna þess að vanreifuðum kröfugerðum er hiklaust vísað frá dómi og menn sem stunda það að berja aðra menn sleppa óskaðaðir.
sunnudagur, febrúar 04, 2007
Rannsókn
Ég var að rannsaka hverjir eiga sama afmælisdag og ég á IMDB. sem er gagnagrunnur um kvikmyndir, þar kom í ljós að frægasti einstaklingurinn er hin sjarmerandi Traci Lords, liggaliggalá þetta er aldeilis frábært......
Pólitík
Ekki stækka álbræðsluna í Straumsvík, ekki leggja veg oní Varmánni og ekki vera svona helvíti miklir vitleysingar.
Bróðir minn benti mér á skemmtileg rök fyrir því að ganga í Evrópusambandið, hann sagði mér bara að skoða hverjir væru mest á móti inngöngu og draga svo ályktun. Eftir þá skoðun er ég þess fullviss að þetta er það sem við eigum að gera.
Annar bróðir minn var að byggja í Þýskalandi og eru lánin hans á 3.% vöxtum, sem er í íslenskum veruleika útópísk tilhugsun.
Á meðan bankarnir græða sem aldrei fyrr eru okurvextir að sliga allt venjulegt fólk, og hvað gera bankarnir? Jú þeir eru farnir að gera upp og díla í erlendri mynt, vegna þess að krónan er ekki góð fyrir þá, en hún er fjandans nógu góð í sauðsvartan almúgan sem alltaf borgar brúsann á endanum.
Það er ekki til neinn stjórnmálaflokkur á Íslandi sem mér getur hugnast að kjósa um þessar mundir. Samfylkingin sem ég trúði að myndi verða góður og sterkur krataflokkur, er bara hjóm og verður ekki merkilegur með þetta fólk í forystu, hún Ingibjörg Sólrún, svo ágæt sem hún kann að vera er ekki að ná neinum árangri. Vinstri græna get ég ekki kosið heldur því þar eru menn enn sem trúa á kommúnisma sem hið eina rétta og eru búnir að stela öllum umhverfismálum, þe. þykjast eiga einkarétt á allri umhverfisumræðu. Mig langar að fá að vita hver viðhorf Steingríms J. eru til 16 milljarða styrksins til sauðfjárbænda.
Frjálslyndir virka bara ekki.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf frí, þar er komin upp þreyta og enginn segir neitt af viti, nema hvað Guðlaugur Þór vill selja bjór og léttvín í fleiri búðum en ÁTVR. Hernaðarbröltið í B.B. er líka orðið vandræðalegt.
Það er enginn að fara að ráðast á okkur!
Semsagt ekkert hægt að kjósa með góðu móti, nema þá kannski older burgers :)

Aceway Spa and Fatness
Nú erum við íbúar hér á ættaróðalinu búnir að ákveða gangerar endurbætur á neðri hæðinni. Færa þvottahúsið um set og breyta gamla í sauna, þetta verður meiriháttar, að geta bakað bumbuna í saununni og svo bara út í pott og bleytt í henni aftur.
Annars er það að frétta af glæpamálinu sem ég er flæktur í að líkamsárásin var mynduð með eftirlitsmyndavélum og á myndunum sést að á mig var ráðist aftan frá að tilefnislausu, vonandi fær árásarmaðurinn makleg málagjöld.

miðvikudagur, janúar 31, 2007
Nú liggja Danir í því..
En ekki við Íslendingar, það er allt ónýtt.
Næsta verkefni er að rækta fleiri tveggjametrakalla í þetta sport svo við séum ekki eins og kettlingar í þessu. Liverpool vann annars í gær , svo ekki var þetta eintóm sorg.
Varð reyndar þeirrar fágætu reynslu aðnjótandi að eitthvað mannfífl sem er kominn á fimmtugsaldur og kallar sig Óla Box gaf mér einn áann úr launsátri í gær, aldrei hef ég séð eða heyrt þetta gerpi nefnt fyrr en mér urðu sú mistök á að brosa að box stælunum í honum sem voru eins og í 14 ára krakka. Ég uppskar hálsríg, aumt rispað nef og heilmiklar blóðnasir ásamt vel sprunginni vör. Hann uppsker hinsvegar líkamsárásarkæru, þetta er eitt það mesta ómenni sem ég hef komist í tæri við.

föstudagur, janúar 26, 2007
Póllendingar og Spánverjar
Eftir leik okkar við Pólland með dómurum frá Spáni ber að geta þess að fólk frá þessum löndum eru, asnar, kúkalabbar, skíthausar, drullusokkar, vangebblingar, hlandmaurar, geitariðlar, aumingjar, fífl, fæðingarhálfvitar, svindlarar, svikarar, náriðlar, dópistar, fyllibyttur, rottufés, tussuheilar.....og margt margt fleira sem óvart hrökk uppúr mér þegar ég horfði á leikinn í gær. Þetta er samt allt í fína því við vinnum Slóveníu á morgun, en ef það klikkar þá bara bætast þeir á listann með þeim sem eru ofantalið.
Þetta er ekki pólitískt kórrétt, en mér er skíííítsama.

föstudagur, janúar 19, 2007
Góðir drengir.
Nú er HM í handbolta að byrja og ég er búinn að finna út að 2 leikmenn íslenska liðsins eiga sama afmælisdag og ég 7.maí þetta eru Sigfús Sigurðsson og Roland Eradze, það er mín spá að þessir menn verði bestir og vinni þetta helv. mót fyrir okkur, hann Roland er meira að segja bara einu ári yngri en ég uppá dag :) Svo ætla Liverpool að vinna Chelsky á morgun líka...
Annars er ég að pissa í buxurnar útaf fundi einum sem ég og Hrannar stórvinur minn eigum á mánudaginn við mjög merkilega menn.

Snillingur úr hverfinu
Það er ekki ofsögum sagt af snillingum héðan úr hverfinu, hérna beint hinum megin við götuna ólst upp hann Þórarinn Tyrfingsson sem benti svo skemmtilega á það í Kastljósi í gær að ofsatrúarhópar eigi ekki að vera að höndla með veikt fólk, sem ekki getur borið hönd fyrir höfuð sér og er með verulega skerta dómgreind. Hérna hinum megin við götuna drakk hann líka ótæpilega, en sneri svo við blaðinu.
Þetta er fín lausn fyrir okkur hin sem lokum augunum fyrir því að það þarf að eyða pening í almennilegt fagfólk til að koma ógæfufólki til hjálpar. Það er dýrt, þessvegna bara um að gera og senda þessi grey í gin einhverra organdi trúarofstækismanna sem reka þetta út með krossinn að vopni.
Öfgatrúarhópurinn stækkar og dafnar, og allir eru kátir? Það er jú takmark allra þessara hópa að stækka og ná sem flestum félögum.
Þetta er rétt hjá Þórarni, þetta fólk á ekki að sjá um fyllibytturnar og dópistana okkar, til þess eru aðrir mun betur fallnir.

miðvikudagur, janúar 17, 2007
Sko mig!
Það eina sem þurfti að gera til að koma þessum athugasemdakerfi í gang var að kveikja á því.
Ég ætla samt að halda fast við þá stefnu að lesa ekki leiðbeiningar í framtíðinni.

fimmtudagur, janúar 11, 2007
Fugl dagsins, eða bara eins lengi og það þarf.
Setti neðst á síðuna fína mynd af fallegum fugli sem ég sá um daginn og ræddi aðeins við. Kann ekki að linka og vesenast með þetta. Veit ekki heldur íslenska nafnið á honum en tjékka á því seinna.
Prófarkalestur....
Ég reyni mitt besta til að skrifa og tala sem besta íslensku. Ég les meira að segja allt yfir sem ég skrifa hér og leiðrétti um leið og ég sé að ég er að gera einhverja vitleysu. Mér finnst það þannig mjög skrýtið að finna frétt eins og þessa hér eftirfarandi á forsíðu mbl.is
" Flugvél Flugstoða hlekktist á í flugtaki og rann útaf flugbrautinni við Öskjuhlíð klukkan 19 mínútur yfir 12. Málið er enn í rannsókn, ekki er vitað hvað margir voru um borð en engan sakaði og vélin er ekki mikið löskuð. "Hún er enn á öllum fótum," sagði starfsmaður Á Reykjavíkurflugvelli í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins. Vélin var á leið til Akureyrar á austur/vestur braut flugvallarins með átta manns innanborðs."
Í byrjun fréttarinnar er ekki vitað hvað þessir átta manns innanborðs eru margir!?
Kannski er það of djúpt í rassinn gripið að segja að þetta séu alltsaman asnar Guðjón?

miðvikudagur, janúar 10, 2007
Ástkæra ylhýra.
Ég hef staðið mig að því undanfarin ár eftir að ég varð svona mikið þýskuséní að ég er orðinn alveg ruglaður í reglunum um stóru og litlu stafina. Er að spá hvort ég sé annaðhvort með Hástafafælni eða Lágstafalosta.
Ég kann ekki enn að setja inn kommentakerfi á þetta blogg, djö.

Að gefnu tilefni...
Þá langar mig að taka fram að mér er hreint ekki illa við börn, mér finnst þau alveg frábær. Hinsvegar finnst mér ekki endilega gaman að hafa þau organdi í eyrað á mér þegar ég er að nördast, og foreldrarnir halda að öllum finnist yndislegt að litli engillinn þeirra sé að maka ís í sköllótta manninn.
Öll þau börn sem ég þekki eru yndisleg og sæt, mín þrjú reyndar áberandi mest.
Ég skrifa þetta vegna þess að mömmu finnst ég hafa tekið of djúpt í árinni í ferðasögunni í dýragarðinn.
Mér finnast mömmur líka æðislegar, og allar mömmur sem ég þekki eru stórkostlegar, mamma mín náttúrlega mest.
PS. Svei mér ef með þessu redda ég ekki nýjum eldhúsgardínum :)

þriðjudagur, janúar 09, 2007
Hvílík endaleysa!
Eftir svona menningarferðir er alltaf gaman að koma heim í endalausa helvítis argaþrasið.
Einn vinur minn sendi óvart einhvern brandara áfram til of margra og allt verður vitlaust, en hjaðnar svo jafn hratt.
Einhverjir íbúar í Reykjavík vilja ekki spilakassa í íbúðahverfi og segja að þetta séu allt rónar og dópistar sem spila í kössum, ég hef eitt 2000 kalli í svona spilakassa og er ekki róni enn, mér finnst þetta bara ekkert skemmtilegt.
Enn aðrir íbúar í nágrannabænum okkar fagra Hafnarfirði, vilja stækka þar álbræðsluna sem stendur faktískt í íbúðahverfi.
Álbræðslan í Straumsvík var örugglega nauðsynleg og góð innspýting í atvinnu og efnahagslíf fyrir 30 árum, en er samkvæmt kröfum um lífsgæði árið 2007 ekki á vetur setjandi svo nálægt mannabyggð.
Ímyndið ykkur bara verðfall húsnæðis þeirra sem nú búa í Áslandi og Vallahverfi í Hafnarfirði. Útsýnið verður bara ein risastór eiturspúandi verksmiðja, æðislegt!
Vonandi ber fólkið í Hafnarfirði gæfu til að hrinda þessari árás mengunar og ógeðfellds skrums í krafti að því er virðist endalaust djúpra vasa fullum af peningum. Ég legg það til enn og aftur við það fólk sem endilega vill risastóra álbræðslu við túnfótinn hjá sér að kíkja austur á Reyðarfjörð og skoða skrímslið sem er þar verið að klára um þessar mundir. Hætt er við að mörgum íbúa Höfuðborgarsvæðisins yrði um og ó.

Kominn heim á kaldan klakann
Jæja, kominn heim í frostið og sæluna frá menningarferðinni miklu, ég þrammaði um Amsterdam í síðustu viku og skoðaði meistarastykki þeirra hollendinga af miklum móð. Ég verð öfundsjúkur fyrir hönd okkar íslendinga útí hvað sumar aðrar þjóðir eiga af menningarverðmætum. Rembrandt , Vermeer, Van Gogh og verk fleiri snillinga gat þarna að líta, alveg hreint frábært að skoða þetta dót.
Fór svo náttúrlega í dýragarðinn að nördast og eyddi þar einum fjórum tímum eða svo, það er langbest fyrir mig að fara einn í nördaferðirnar mínar í dýragarða svo ég geti skoðað þetta almennilega án utanaðkomandi pressu, reyndar leiðinlegt að ekki skuli vera hægt að koma á tímum sem organdi krakkaandskotar eru heima hjá sér að öskra. Skemmir fyrir mér þegar ég reyni að ná telepati sambandi við fuglana, sem eru mín uppáhalds fyrirbæri.
Ég var kominn með samband við einn voða fallegann Kookaburra þegar einhver ofdekraður óyndisormur fór að arga og hrista netið sem skildi okkur að, þannig að ég flúði og náði að spjalla heilmikið við hóp af fallegum rauðum íbisum sem eru ekki eins feimnir og hvítu íbisarnir heilögu, náði engu sambandi við þennan eina sem ég sá.
Það kom mér nokkuð á óvart hvað gæsagammar eru elskulegir og náði ég að spjalla heillengi við einn sem kom niður til mín fyrir forvitnissakir.
Það varð uppi fótur og fit þegar átti að fara að gefa mörgæsunum og hópuðust og tróðust tugir sífrandi krakkarassgata að, þetta gaf mér smá næði þar sem mér finnst lítið til mörgæsa koma. Á sama svæði eru súlur á svamli og slást um síldina við mörgæsirnar, saknaði ég þess að ekki væri gerð dýpri laug fyrir þær, svo að krakkaormarnir gætu séð almennilegt súlukast inní miðri Amsterdam, súlurnar eru mikið meira kúl en mörgæsirnar.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)