miðvikudagur, janúar 31, 2007

Nú liggja Danir í því..

En ekki við Íslendingar, það er allt ónýtt.
Næsta verkefni er að rækta fleiri tveggjametrakalla í þetta sport svo við séum ekki eins og kettlingar í þessu. Liverpool vann annars í gær , svo ekki var þetta eintóm sorg.
Varð reyndar þeirrar fágætu reynslu aðnjótandi að eitthvað mannfífl sem er kominn á fimmtugsaldur og kallar sig Óla Box gaf mér einn áann úr launsátri í gær, aldrei hef ég séð eða heyrt þetta gerpi nefnt fyrr en mér urðu sú mistök á að brosa að box stælunum í honum sem voru eins og í 14 ára krakka. Ég uppskar hálsríg, aumt rispað nef og heilmiklar blóðnasir ásamt vel sprunginni vör. Hann uppsker hinsvegar líkamsárásarkæru, þetta er eitt það mesta ómenni sem ég hef komist í tæri við.

föstudagur, janúar 26, 2007

Póllendingar og Spánverjar

Eftir leik okkar við Pólland með dómurum frá Spáni ber að geta þess að fólk frá þessum löndum eru, asnar, kúkalabbar, skíthausar, drullusokkar, vangebblingar, hlandmaurar, geitariðlar, aumingjar, fífl, fæðingarhálfvitar, svindlarar, svikarar, náriðlar, dópistar, fyllibyttur, rottufés, tussuheilar.....og margt margt fleira sem óvart hrökk uppúr mér þegar ég horfði á leikinn í gær. Þetta er samt allt í fína því við vinnum Slóveníu á morgun, en ef það klikkar þá bara bætast þeir á listann með þeim sem eru ofantalið.
Þetta er ekki pólitískt kórrétt, en mér er skíííítsama.

föstudagur, janúar 19, 2007

Góðir drengir.

Nú er HM í handbolta að byrja og ég er búinn að finna út að 2 leikmenn íslenska liðsins eiga sama afmælisdag og ég 7.maí þetta eru Sigfús Sigurðsson og Roland Eradze, það er mín spá að þessir menn verði bestir og vinni þetta helv. mót fyrir okkur, hann Roland er meira að segja bara einu ári yngri en ég uppá dag :) Svo ætla Liverpool að vinna Chelsky á morgun líka...
Annars er ég að pissa í buxurnar útaf fundi einum sem ég og Hrannar stórvinur minn eigum á mánudaginn við mjög merkilega menn.

Snillingur úr hverfinu

Það er ekki ofsögum sagt af snillingum héðan úr hverfinu, hérna beint hinum megin við götuna ólst upp hann Þórarinn Tyrfingsson sem benti svo skemmtilega á það í Kastljósi í gær að ofsatrúarhópar eigi ekki að vera að höndla með veikt fólk, sem ekki getur borið hönd fyrir höfuð sér og er með verulega skerta dómgreind. Hérna hinum megin við götuna drakk hann líka ótæpilega, en sneri svo við blaðinu.
Þetta er fín lausn fyrir okkur hin sem lokum augunum fyrir því að það þarf að eyða pening í almennilegt fagfólk til að koma ógæfufólki til hjálpar. Það er dýrt, þessvegna bara um að gera og senda þessi grey í gin einhverra organdi trúarofstækismanna sem reka þetta út með krossinn að vopni.
Öfgatrúarhópurinn stækkar og dafnar, og allir eru kátir? Það er jú takmark allra þessara hópa að stækka og ná sem flestum félögum.
Þetta er rétt hjá Þórarni, þetta fólk á ekki að sjá um fyllibytturnar og dópistana okkar, til þess eru aðrir mun betur fallnir.

miðvikudagur, janúar 17, 2007

Sko mig!

Það eina sem þurfti að gera til að koma þessum athugasemdakerfi í gang var að kveikja á því.
Ég ætla samt að halda fast við þá stefnu að lesa ekki leiðbeiningar í framtíðinni.

fimmtudagur, janúar 11, 2007

Fugl dagsins, eða bara eins lengi og það þarf.

Setti neðst á síðuna fína mynd af fallegum fugli sem ég sá um daginn og ræddi aðeins við. Kann ekki að linka og vesenast með þetta. Veit ekki heldur íslenska nafnið á honum en tjékka á því seinna.

Prófarkalestur....

Ég reyni mitt besta til að skrifa og tala sem besta íslensku. Ég les meira að segja allt yfir sem ég skrifa hér og leiðrétti um leið og ég sé að ég er að gera einhverja vitleysu. Mér finnst það þannig mjög skrýtið að finna frétt eins og þessa hér eftirfarandi á forsíðu mbl.is
" Flugvél Flugstoða hlekktist á í flugtaki og rann útaf flugbrautinni við Öskjuhlíð klukkan 19 mínútur yfir 12. Málið er enn í rannsókn, ekki er vitað hvað margir voru um borð en engan sakaði og vélin er ekki mikið löskuð. "Hún er enn á öllum fótum," sagði starfsmaður Á Reykjavíkurflugvelli í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins. Vélin var á leið til Akureyrar á austur/vestur braut flugvallarins með átta manns innanborðs."

Í byrjun fréttarinnar er ekki vitað hvað þessir átta manns innanborðs eru margir!?
Kannski er það of djúpt í rassinn gripið að segja að þetta séu alltsaman asnar Guðjón?

miðvikudagur, janúar 10, 2007

Ástkæra ylhýra.

Ég hef staðið mig að því undanfarin ár eftir að ég varð svona mikið þýskuséní að ég er orðinn alveg ruglaður í reglunum um stóru og litlu stafina. Er að spá hvort ég sé annaðhvort með Hástafafælni eða Lágstafalosta.
Ég kann ekki enn að setja inn kommentakerfi á þetta blogg, djö.

Að gefnu tilefni...

Þá langar mig að taka fram að mér er hreint ekki illa við börn, mér finnst þau alveg frábær. Hinsvegar finnst mér ekki endilega gaman að hafa þau organdi í eyrað á mér þegar ég er að nördast, og foreldrarnir halda að öllum finnist yndislegt að litli engillinn þeirra sé að maka ís í sköllótta manninn.
Öll þau börn sem ég þekki eru yndisleg og sæt, mín þrjú reyndar áberandi mest.
Ég skrifa þetta vegna þess að mömmu finnst ég hafa tekið of djúpt í árinni í ferðasögunni í dýragarðinn.
Mér finnast mömmur líka æðislegar, og allar mömmur sem ég þekki eru stórkostlegar, mamma mín náttúrlega mest.

PS. Svei mér ef með þessu redda ég ekki nýjum eldhúsgardínum :)

þriðjudagur, janúar 09, 2007

Hvílík endaleysa!

Eftir svona menningarferðir er alltaf gaman að koma heim í endalausa helvítis argaþrasið.
Einn vinur minn sendi óvart einhvern brandara áfram til of margra og allt verður vitlaust, en hjaðnar svo jafn hratt.
Einhverjir íbúar í Reykjavík vilja ekki spilakassa í íbúðahverfi og segja að þetta séu allt rónar og dópistar sem spila í kössum, ég hef eitt 2000 kalli í svona spilakassa og er ekki róni enn, mér finnst þetta bara ekkert skemmtilegt.
Enn aðrir íbúar í nágrannabænum okkar fagra Hafnarfirði, vilja stækka þar álbræðsluna sem stendur faktískt í íbúðahverfi.
Álbræðslan í Straumsvík var örugglega nauðsynleg og góð innspýting í atvinnu og efnahagslíf fyrir 30 árum, en er samkvæmt kröfum um lífsgæði árið 2007 ekki á vetur setjandi svo nálægt mannabyggð.
Ímyndið ykkur bara verðfall húsnæðis þeirra sem nú búa í Áslandi og Vallahverfi í Hafnarfirði. Útsýnið verður bara ein risastór eiturspúandi verksmiðja, æðislegt!
Vonandi ber fólkið í Hafnarfirði gæfu til að hrinda þessari árás mengunar og ógeðfellds skrums í krafti að því er virðist endalaust djúpra vasa fullum af peningum. Ég legg það til enn og aftur við það fólk sem endilega vill risastóra álbræðslu við túnfótinn hjá sér að kíkja austur á Reyðarfjörð og skoða skrímslið sem er þar verið að klára um þessar mundir. Hætt er við að mörgum íbúa Höfuðborgarsvæðisins yrði um og ó.

Kominn heim á kaldan klakann

Jæja, kominn heim í frostið og sæluna frá menningarferðinni miklu, ég þrammaði um Amsterdam í síðustu viku og skoðaði meistarastykki þeirra hollendinga af miklum móð. Ég verð öfundsjúkur fyrir hönd okkar íslendinga útí hvað sumar aðrar þjóðir eiga af menningarverðmætum. Rembrandt , Vermeer, Van Gogh og verk fleiri snillinga gat þarna að líta, alveg hreint frábært að skoða þetta dót.
Fór svo náttúrlega í dýragarðinn að nördast og eyddi þar einum fjórum tímum eða svo, það er langbest fyrir mig að fara einn í nördaferðirnar mínar í dýragarða svo ég geti skoðað þetta almennilega án utanaðkomandi pressu, reyndar leiðinlegt að ekki skuli vera hægt að koma á tímum sem organdi krakkaandskotar eru heima hjá sér að öskra. Skemmir fyrir mér þegar ég reyni að ná telepati sambandi við fuglana, sem eru mín uppáhalds fyrirbæri.
Ég var kominn með samband við einn voða fallegann Kookaburra þegar einhver ofdekraður óyndisormur fór að arga og hrista netið sem skildi okkur að, þannig að ég flúði og náði að spjalla heilmikið við hóp af fallegum rauðum íbisum sem eru ekki eins feimnir og hvítu íbisarnir heilögu, náði engu sambandi við þennan eina sem ég sá.
Það kom mér nokkuð á óvart hvað gæsagammar eru elskulegir og náði ég að spjalla heillengi við einn sem kom niður til mín fyrir forvitnissakir.
Það varð uppi fótur og fit þegar átti að fara að gefa mörgæsunum og hópuðust og tróðust tugir sífrandi krakkarassgata að, þetta gaf mér smá næði þar sem mér finnst lítið til mörgæsa koma. Á sama svæði eru súlur á svamli og slást um síldina við mörgæsirnar, saknaði ég þess að ekki væri gerð dýpri laug fyrir þær, svo að krakkaormarnir gætu séð almennilegt súlukast inní miðri Amsterdam, súlurnar eru mikið meira kúl en mörgæsirnar.