Jæja, kominn heim í frostið og sæluna frá menningarferðinni miklu, ég þrammaði um Amsterdam í síðustu viku og skoðaði meistarastykki þeirra hollendinga af miklum móð. Ég verð öfundsjúkur fyrir hönd okkar íslendinga útí hvað sumar aðrar þjóðir eiga af menningarverðmætum. Rembrandt , Vermeer, Van Gogh og verk fleiri snillinga gat þarna að líta, alveg hreint frábært að skoða þetta dót.
Fór svo náttúrlega í dýragarðinn að nördast og eyddi þar einum fjórum tímum eða svo, það er langbest fyrir mig að fara einn í nördaferðirnar mínar í dýragarða svo ég geti skoðað þetta almennilega án utanaðkomandi pressu, reyndar leiðinlegt að ekki skuli vera hægt að koma á tímum sem organdi krakkaandskotar eru heima hjá sér að öskra. Skemmir fyrir mér þegar ég reyni að ná telepati sambandi við fuglana, sem eru mín uppáhalds fyrirbæri.
Ég var kominn með samband við einn voða fallegann Kookaburra þegar einhver ofdekraður óyndisormur fór að arga og hrista netið sem skildi okkur að, þannig að ég flúði og náði að spjalla heilmikið við hóp af fallegum rauðum íbisum sem eru ekki eins feimnir og hvítu íbisarnir heilögu, náði engu sambandi við þennan eina sem ég sá.
Það kom mér nokkuð á óvart hvað gæsagammar eru elskulegir og náði ég að spjalla heillengi við einn sem kom niður til mín fyrir forvitnissakir.
Það varð uppi fótur og fit þegar átti að fara að gefa mörgæsunum og hópuðust og tróðust tugir sífrandi krakkarassgata að, þetta gaf mér smá næði þar sem mér finnst lítið til mörgæsa koma. Á sama svæði eru súlur á svamli og slást um síldina við mörgæsirnar, saknaði ég þess að ekki væri gerð dýpri laug fyrir þær, svo að krakkaormarnir gætu séð almennilegt súlukast inní miðri Amsterdam, súlurnar eru mikið meira kúl en mörgæsirnar.
þriðjudagur, janúar 09, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli