föstudagur, janúar 19, 2007

Snillingur úr hverfinu

Það er ekki ofsögum sagt af snillingum héðan úr hverfinu, hérna beint hinum megin við götuna ólst upp hann Þórarinn Tyrfingsson sem benti svo skemmtilega á það í Kastljósi í gær að ofsatrúarhópar eigi ekki að vera að höndla með veikt fólk, sem ekki getur borið hönd fyrir höfuð sér og er með verulega skerta dómgreind. Hérna hinum megin við götuna drakk hann líka ótæpilega, en sneri svo við blaðinu.
Þetta er fín lausn fyrir okkur hin sem lokum augunum fyrir því að það þarf að eyða pening í almennilegt fagfólk til að koma ógæfufólki til hjálpar. Það er dýrt, þessvegna bara um að gera og senda þessi grey í gin einhverra organdi trúarofstækismanna sem reka þetta út með krossinn að vopni.
Öfgatrúarhópurinn stækkar og dafnar, og allir eru kátir? Það er jú takmark allra þessara hópa að stækka og ná sem flestum félögum.
Þetta er rétt hjá Þórarni, þetta fólk á ekki að sjá um fyllibytturnar og dópistana okkar, til þess eru aðrir mun betur fallnir.

Engin ummæli: