þriðjudagur, febrúar 27, 2007

Fólk er ekki eins mikið fífl og ég hélt

Skemmtilegt að niðurstöðurnar úr skoðanakönnuninni sem Fréttablaðið gerði um ákvörðun Bændasamtakanna um að vísa starfsfólki í allsberum afþreygingariðnaði frá og skemmileggja þar með allt fyrir þeim svo þau hættu við íslandsför sem hefði örugglega skilið eftir 50 milljónir + í peningakössum íslenskra ferðaþjónustu og afþreygingarfyrirtækja.
Niðurstaðan var að meirihluta fólks fannst þetta vera tóm vitleysa.
Í aðdragandanum buldi hæst í nokkrum tómum tunnum, þeim Villa Þ, Ingu S. og Grímsa J.S. Það er annars skemmtilegt að fylgjast með hvað allir stjórnmálamenn landsins eru á hröðum flótta frá mér sem kjósanda, ég þoli engan þeirra núna.
Stulli Bö kom með útópíska samgönguáætlun klukkan hálfkosningar sem ekkert mark er takandi á, mér finnst reyndar bara gaman að hlusta á Stulla halda ræður á ensku, það er krydd í þeim ræðum.

föstudagur, febrúar 23, 2007

Klámráðstefnan mikla

Nú hafa þau loksins gefist upp á röflinu í nöldurliðinu, fólkið sem ætlaði að koma hingað til fagra Íslands og skemmta sér hressilega eina helgi eða svo. Skemmtilegt væri að vita úr hvaða sjóðum Ríkisins þeir sækja sér svo skaðabæturnar fyrir þessu kallarnir í Bændasamtökunum, mér reiknast lauslega til að þetta séu 15-20 milljónir tapaðar. Ferðaþjónustan á Íslandi hefur það nú nógu helvíti gott á veturna, þó einhverjir öskurapar vilji eyðileggja allt það markaðsstarf sem þar er unnið.
En svona að lokum leyfi ég mér að fullyrða að Hótel Saga er með stærri seljendum kláms á Íslandi í formi pay-tv, þarna ríður tvískinnungurinn ekki á eintrjáning eins og maðurinn sagði, en heldur finnst mér þetta djúpt í rassinn gripið.

föstudagur, febrúar 16, 2007

Stríð við Kópavog!

Eftir atburði síðustu daga þar sem Kópavogsarar hafa vaðið með skítugar skurðgröfur inn í einn helgasta unaðsreit Reykjavíkur, Heiðmörk, og eyðilagt þar helling í óleyfi, legg ég til að Kópavogi verði sagt stríð á hendur. Skrúfum fyrir vatnið og rafmagnið og setjum upp vegartálma við bæjarmörkin, engum Kópavogsbúa verður hleypt inn til Reykjavíkur. Vegatálmarnir standi þar til Gunnar er búinn að biðjast afsökunar og laga til eftir sig. Einnig mætti heimta skaðabætur ógurlegar í formi t.d. landareigna.

þriðjudagur, febrúar 13, 2007

Veg yfir Kjöl jú víst!

Ég er mikill unnandi náttúrunnar en skil samt ekki afhverju ekki má gera almennilegan veg yfir Kjöl? Kjölur er allt sumarið fólksbílafær og þar eru allar sprænur orðið brúaðar þannig að hver sem er getur farið þetta. Vegurinn er hinsvegar oft svo vondur þá sérstaklega hér að sunnanverðunni að fólk hættir ekki á að eyðileggja bílana sína. Ef bara er hægt að fara þessa leið á stórum bensínhákum, þá er það ekki umhverfisvernd. Útlendingar fara þessa leið á litlum bílaleigubílum og skemma þá, það er ekki umhverfisvænt. Fólk á að hafa aðgang þarna að til að njóta víðáttunnar og þannig eignumst við fleira fólk sem sannarlega kann að meta hálendið, sem reyndar er uppblásið og bert eftir ógurlega meðferð mannanna. Með betri vegi er aðgengið að stöðunum betra þangað kemur fleira fólk sem getur látið gott af sér leiða. Góður vegur yfir Kjöl skemmir ekki neitt.
Ég kom að bílslysi á Kili síðastliðið sumar og reyndist það þrautin þyngri að ná í hjálp, eftir langan tíma komu björgunarsveitarmenn með Iridium síma þar sem hægt var að ná sambandi við 112 og kom TF-LÍF eftir ca. klukkutíma eftir að sambandi var náð. Ekki er á Kili GSM eða NMT samband núna og þessvegna er það ábyrgðarhluti að hafa veginn svona vondan, þar sem það býður uppá slys. Góður vegur um Kjöl og gott símasamband er gott mál, og annað er umhverfisfasismi.

mánudagur, febrúar 12, 2007

Blórabögglar og sökudólgar

Mikið er leitað að slíkum nú.
Hverjum er Breiðavíkur ógæfan að kenna? Jú við skulum benda á ríkið og einhverja löngu dauða kalla, ef ekki á líkama þá á sál.
Við skulum ekki gleyma að áður en þessir aumingja drengir, sem ég vorkenni sárt að hafa þurft að þola þessa vítisvist, komu til Breiðavíkur voru margir búnir að bregðast sínu hlutverki illilega og hafði Ríkið ekki neina forgöngu þar um. Fyrstir allra til að bregðast sínu hlutverki voru foreldrar og ættingjar strákanna, sem eflaust hafa verið í mörgum tilfellum aumingjar af einhverju óskilgreindu tagi.
Það fólk er nú farið að rífa sig. Ekki skilja þetta sem einhverja andstöðu við að þessum strákum verði hjálpað núna eða þeir studdir á allan hátt, en líttu þér nær.

Hitt málið er Byrgið, þar er einn dónakall búinn að setja allt á annan endann og það er ekki neinum að kenna nema honum sjálfum, Jesús Jósefsson var að minnsta kosti ekki meðreiðarsveinn hans þarna.
Aftur er bent á Ríkið og ráðherrana, afhverju sagði enginn neitt fyrr en núna? Jú, dópistarnir voru úr augsýn og þá er allt gott.
Það er með hreinum ólíkindum hvað eru margir sérfræðingar um dópistameðferðarmál sprottnir upp nú nýlega, og hafa lengi vitað að þarna væri maðkur í mysunni.Aftur benda aðstandendur og dópistar á einhvern annan en sjálfan sig.
Líttu þér nær.

þriðjudagur, febrúar 06, 2007

Kröfugerðin mikla frá Kasmír

Ég réði lögfræðing til að gera kröfugerð í líkamsárásarmálinu mikla í dag, þetta verður að vanda vel vegna þess að vanreifuðum kröfugerðum er hiklaust vísað frá dómi og menn sem stunda það að berja aðra menn sleppa óskaðaðir.

sunnudagur, febrúar 04, 2007

Rannsókn

Ég var að rannsaka hverjir eiga sama afmælisdag og ég á IMDB. sem er gagnagrunnur um kvikmyndir, þar kom í ljós að frægasti einstaklingurinn er hin sjarmerandi Traci Lords, liggaliggalá þetta er aldeilis frábært......

Pólitík

Ekki stækka álbræðsluna í Straumsvík, ekki leggja veg oní Varmánni og ekki vera svona helvíti miklir vitleysingar.
Bróðir minn benti mér á skemmtileg rök fyrir því að ganga í Evrópusambandið, hann sagði mér bara að skoða hverjir væru mest á móti inngöngu og draga svo ályktun. Eftir þá skoðun er ég þess fullviss að þetta er það sem við eigum að gera.
Annar bróðir minn var að byggja í Þýskalandi og eru lánin hans á 3.% vöxtum, sem er í íslenskum veruleika útópísk tilhugsun.
Á meðan bankarnir græða sem aldrei fyrr eru okurvextir að sliga allt venjulegt fólk, og hvað gera bankarnir? Jú þeir eru farnir að gera upp og díla í erlendri mynt, vegna þess að krónan er ekki góð fyrir þá, en hún er fjandans nógu góð í sauðsvartan almúgan sem alltaf borgar brúsann á endanum.
Það er ekki til neinn stjórnmálaflokkur á Íslandi sem mér getur hugnast að kjósa um þessar mundir. Samfylkingin sem ég trúði að myndi verða góður og sterkur krataflokkur, er bara hjóm og verður ekki merkilegur með þetta fólk í forystu, hún Ingibjörg Sólrún, svo ágæt sem hún kann að vera er ekki að ná neinum árangri. Vinstri græna get ég ekki kosið heldur því þar eru menn enn sem trúa á kommúnisma sem hið eina rétta og eru búnir að stela öllum umhverfismálum, þe. þykjast eiga einkarétt á allri umhverfisumræðu. Mig langar að fá að vita hver viðhorf Steingríms J. eru til 16 milljarða styrksins til sauðfjárbænda.
Frjálslyndir virka bara ekki.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf frí, þar er komin upp þreyta og enginn segir neitt af viti, nema hvað Guðlaugur Þór vill selja bjór og léttvín í fleiri búðum en ÁTVR. Hernaðarbröltið í B.B. er líka orðið vandræðalegt.
Það er enginn að fara að ráðast á okkur!
Semsagt ekkert hægt að kjósa með góðu móti, nema þá kannski older burgers :)

Aceway Spa and Fatness

Nú erum við íbúar hér á ættaróðalinu búnir að ákveða gangerar endurbætur á neðri hæðinni. Færa þvottahúsið um set og breyta gamla í sauna, þetta verður meiriháttar, að geta bakað bumbuna í saununni og svo bara út í pott og bleytt í henni aftur.
Annars er það að frétta af glæpamálinu sem ég er flæktur í að líkamsárásin var mynduð með eftirlitsmyndavélum og á myndunum sést að á mig var ráðist aftan frá að tilefnislausu, vonandi fær árásarmaðurinn makleg málagjöld.