laugardagur, apríl 28, 2007
Örlar á dröllu?
Ja hver skrambinn, allt farið á hvolf vegna þess að Helgi Seljan snillingur náði að gægjast inn í Framsóknarfjósið og sjá skít í flórnum. Hvað býst fólk við að sjá inni í níræðum fjósum? Nú er einmitt tækifæri til að loka þessu fjósi og henda innviðunum fjandans til, svo útmignir, skitnir, slitnir, sleipir og ofbrúkaðir þeir eru.
fimmtudagur, apríl 26, 2007
Reddum öllu á einu bretti
Hættum við að troða risaspítala niðri í bæ og flytjum hann á lóðina við Straumsvík sem er að losna fyrst Alcan vill ekki vera þar lengur með litlu sætu álbræðsluna sína. Tvöföldum Reykjanesbrautina alla leið með vegriðum og góðri lýsingu og hækkum hámarkshraða þar í að minnsta kosti 120 km. klst. Með þessu getum við líka lokað Reykjavíkurflugvelli og fært allt flugið á Keflavíkurflugvöll þar sem það á best heima og nóg pláss er fyrir alla. (nema reyndar þá sem ekki tóku þátt í samkeppnishamlandi útboði til 12 ára árið 2000 vegna þess að fyrirtækið var fyrst stofnað árið 2005)
Þetta er alveg snilldarhugmynd sem öllum finnst æði finnst mér.
Þetta er alveg snilldarhugmynd sem öllum finnst æði finnst mér.
Kommentin sem hverfa
Það hverfa öll komment sem hér koma inn í eitthvað hyldýpisgin sem ég nenni ekki að spá í núna, kannski seinna.
sunnudagur, apríl 08, 2007
Paulaner Original Münchner Hell
Mér vöknaði um augu er ég sá um daginn að loksins er hægt að drekka eðalbjór frá München á Íslandi án þess að bera hann með sér langar leiðir frá upprunaborginni. Nú bið ég bara um að haldið verði áfram á sömu góðu brautinni og Augustiner sem er nú enn langbestur allra, verði seldur í ríkisapparatinu líka. Ein prosit ein prosit der gemütlichkeit, oan zwoa drei gsuffa !!!!!
fimmtudagur, apríl 05, 2007
Kattakaffi til góðra verka
Það er ekki nokkur lifandi leið að ég muni nokkru sinni drekka kaffi útúr kattarrassi, einnig er mér spurn hvernig baununum er komið ónöguðum ofan í kettina.
Ég vill benda þeim ösnum sem láta gabba sig til að drekka ómelt kattaskítseyði að það er hægt að gefa peninga til styrktar hinum ýmsu málefnum beint, og án þess að gera sig að generalfífli.
Ég vill benda þeim ösnum sem láta gabba sig til að drekka ómelt kattaskítseyði að það er hægt að gefa peninga til styrktar hinum ýmsu málefnum beint, og án þess að gera sig að generalfífli.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)