sunnudagur, ágúst 26, 2007

Rútuslys

Í tilefni þessa rútuslyss á Fljótsdalnum datt mér einmitt í hug að í eitthvað af þeim skiptum sem ég hef keyrt upp brekkuna atarna hugleiddi ég hvursu ferlegt væri örugglega að verða bremsulaus á leiðinni niður. Vel að merkja hef ég aldrei keyrt niður þessa brekku, bara upp.
Akstur stórra bíla lýtur allt öðrum lögmálum en akstur minni bíla og er leitt að lesa og heyra marga "sérfræðinga" tjá sig um málið sem ekki hafa hundsvit þar á.
Þessi umrædda rúta sýnist mér vera gamall "Júkki" smíðaður eftir teikningu Guðmundar Laugdal byggður á Benz grind en yfirbyggður í Júgóslavíu heitinni, þessi bíll er örugglega búinn 2ja punkta öryggisbeltum í öllum sætum, annars förlast mér illa. Það er bara enginn hægðarleikur fyrir bílstjóragreyin að fylgjast með og fylgja beltanotkun eftir því þegar þeim er aldrei hlýtt þá gefast þeir bara upp, þó svo að ekki séu alltaf sömu farþegarnir innanborðs.
Líka gaman að sjá að fólk álíti rútuakstur vera ábyrgðarstarf, eða allavega þar til greiða á rútubílstjórum laun....

Engin ummæli: