Ég kláraði eina hringferð um landið okkar allra í dag og fékk alveg yfir mig nóg af andskotans ónýta vegaruslinu sem tug ef ekki hundruðum þúsunda ferðamanna er boðið uppá. Nokkur dæmi fara hér á eftir.
Hólssandur frá Ásbyrgi að Dettifossi og niður á Hringveginn við Grímsstaði á Fjöllum, þetta vegarhelvíti sem hefur verið okkur íslendingum til háborinnar skammar í nokkra áratugi er svo handónýtt að fyrir löngu ætti að vera búið að banna alla umferð þarna um nema kannski dráttarvéla, ég kom einmitt að einni bílveltu þarna í þessari ferð og var það ekki sú fyrsta og klárlega ekki sú síðasta á þessu sumri..
Vegurinn út í Dyrhólaey, að aka um þennan 6 km. stubb er eins og renna sér niður Kóngsgilið í Bláfjöllum á magasleða um hásumar, þessi andskotans stubbur er hræðilegur yfirferðar vægast sagt og gæti ég helst ímyndað mér að svona líti vegagerð út hjá andskotanum sjálfum.
Gjábakkavegur, sem liggur frá elsta þjóðgarði okkar til mest heimsóttu náttúrugersema okkar Gullfosss og Geysis er hryllilegur og ekki nokkrum manni bjóðandi, þvottabretti og djúpar holur út um allt.
Það er komið árið 2007 og það koma um eða yfir 300.000 ferðamenn hingað á hverju ári, auk þess sem íslendingar rúnta sjálfir töluvert um. Það er ekki í lagi að bjóða upp á þennan hrylling, flottast af öllu þótti mér samt skiltið sem sýnir 80 km. hámarkshraða á veginum út í Dyrhólaey, hafi einhver náð þeim hraða og sloppið óskemmdur frá, bitte melden.
miðvikudagur, ágúst 15, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli