miðvikudagur, desember 05, 2007

Virkjanir í neðri hluta Þjórsár

Aldrei líður langur tími milli þess sem hægt er að rífast um virkjanamál og núna ætla ég að andskotast útí fyrirhugaðar virkjanir í neðri hluta Þjórsár.
Þjórsáin er fögur og fríð og er einnig lengsta á á Íslandi 230 km. löng að mig minnir frá Þjórsárverum við Hofsjökul og niður í fjöru í Flóanum. Þjórsáin er bara alveg búin að leggja sitt á vogarskálarnar í gegnum tíðina og er efri hluti hennar og vatnasvæði ansi mikið virkjaður orðinn nú þegar og ætli Þjórsá fari ekki langt með að skaffa helminginn af allri raforku sem er framleidd á landinu í dag, þessar virkjanir eru nú þegar í Þjórsá, Vatnsfellsvirkjun, Sigölduvirkjun, Hrauneyjafossvirkjun, Sultartangavirkjun og Búrfellsvirkjun.
Ég held að við eigum bara að sleppa þessu og leyfa Þjórsánni að eiga sig niðri í byggð og hlífa algerlega hinum stórkostlega Urriðafossi sem sést aðeins grilla í frá nýju Þjórsárbrúnni og legg ég til við fólk að fara niður að honum og finna og heyra kraftinn í þessu stórkostlega vatnsfalli sem er reyndar ekki foss í eiginlegum skilningi, frekar svona svakalegar flúðir. Ef allt bregst og illgjarnir menn og gírugir hafa betur og virkja þarna allt í steik, þá treysti ég á hann Kampholtsmóra vin minn sem þarna hefst við í nágrenninu að láta til sín taka með misfallegum úrræðum....

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Á bara ekkert að tjá sig meira hér eða ??